„Hann var bara að troða mér inn í liðið“
„Hann sagði við mig að ég ætti skilið að byrja, en hann tekur ekki út sína menn á miðjunni,“ sagði Willum Þór Willumsson, knattspyrnumaður hjá N…
„Hann sagði við mig að ég ætti skilið að byrja, en hann tekur ekki út sína menn á miðjunni,“ sagði Willum Þór Willumsson, knattspyrnumaður hjá NEC, í samtali við mbl.is eftir sigur liðsins á Rennes í Evrópudeildinni í gær.
Willum fékk sæti í byrjunarliðinu en þurfti að leika sem hægri vængbakvörður, í stöðu sem hann hafði aldrei leikið áður.
„Þetta var eina staðan þar sem hann gat komið mér inn í liðið. Hann var bara að troða mér inn í liðið,“ sagði Willum, sem var ánægður með sigurinn á franska liðinu.
„Ég myndi ekki vilja spila alltaf þarna. Það hentar mér ekkert allt of vel, en þetta gekk bara nokkuð vel.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗