Hjálpar engum svekkja sig og vera þungur

„Maður er eiginlega orðinn aðeins of gamall til að vera að svekkja sig á hlutunum,“ sagði Alfons Sampsted, knattspyrnumaður hjá Go Ahead Eagles …

Alfons Sampsted hefur ekki verið í náðinni hjá Arnari Gunnlaugssyni.

„Maður er eiginlega orðinn aðeins of gamall til að vera að svekkja sig á hlutunum,“ sagði Alfons Sampsted, knattspyrnumaður hjá Go Ahead Eagles í Hollandi, í samtali við Morgunblaðið um stöðu sína hjá íslenska landsliðinu.

Alfons hefur ekki leikið landsleik frá árinu 2024. Hann var kallaður inn í hópinn í miðju þarsíðasta verkefni en sat allan tímann á varamannabekknum gegn Eistlandi á útivelli.

„Ég er bara að reyna að skila góðri frammistöðu hérna úti, spila 90 mínútur í hverjum leik og standa mig vel, sem mér finnst ég hafa verið að gera undanfarið.

Síðan er landsliðsþjálfarinn sem lítur á þá frammistöðu og ákveður hvort þetta sé leikmaður fyrir sig.“

Alfons hefur rætt við Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfara og sagði gagnkvæma virðingu ríkja þeirra á milli. Hann hefði þó viljað fá tækifæri.

„Ég hefði kannski viljað fá sénsinn inni á vellinum til að sýna hvað í mér býr. Ég get bara gert mitt og það er að standa mig vel þegar ég spila hérna.“

Hann ætlaði ekki að láta stöðuna hafa neikvæð áhrif á sig.

„Ef ég ætla að vera hérna heima að svekkja mig og vera þungur hjálpar það engum. Ég held bara áfram að gera mitt og ef kallið kemur mæti ég og gef hundrað prósent. Það er bara karakterinn minn.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab