Spilaði fyrsta leikinn þrátt fyrir veikindi

Hanna Þráinsdóttir, körfuknattleikskona hjá Leiden í Hollandi, lét ælupest á leikdegi ekki koma í veg fyrir að hún tæki þátt í sínum fyrsta leik…

Hanna gekk í raðir Leiden frá KR fyrir tímabilið.

Hanna gekk í raðir Leiden frá KR fyrir tímabilið. Ljósmynd/Leiden

Hanna Þráinsdóttir, körfuknattleikskona hjá Leiden í Hollandi, lét ælupest á leikdegi ekki koma í veg fyrir að hún tæki þátt í sínum fyrsta leik með liðinu.

„Ég fékk bara ælupest á leikdegi. Ég endaði á að taka einhverjar pillur og spila leikinn en það var bara þetta eina skipti,“ sagði Hanna í samtali við Morgunblaðið.

Hanna gekk til liðs við Leiden frá KR og segir fyrstu mánuðina í Hollandi hafa gengið vel. Þegar viðtalið var tekið hafði liðið unnið fjóra leiki og tapað fjórum.

„Við byrjuðum vel og unnum fyrsta leikinn. Svo kom smá niðurtúr og við töpuðum þremur í röð. Nú erum við aftur komnar á sigurbraut og á mjög gott ról. Við vonumst til að halda því áfram.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「mbl.is - Íþróttafréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读