Allt öðruvísi að búa á meginlandinu

„Ég er farin að skilja þegar þau detta í að tala hollensku á æfingum og get fylgst með,“ sagði Hanna Þráinsdóttir, körfuknattleikskona hjá Leide…

Hanna Þráinsdóttir lék m.a. með Aþenu hér á landi.

„Ég er farin að skilja þegar þau detta í að tala hollensku á æfingum og get fylgst með,“ sagði Hanna Þráinsdóttir, körfuknattleikskona hjá Leiden í Hollandi, í samtali við Morgunblaðið.

Hanna hefur kunnað vel við sig í nýju landi og er smám saman að ná tökum á tungumálinu. Hún er þó ekki sérstaklega hrifin af hljómnum.

„Það hjálpar að vera alltaf í kringum Hollendinga. En þetta er ekki fallegasta tungumálið.“

Hanna flutti til Hollands í ágúst eftir tvö tímabil með KR. Hún hafði áður búið í Bandaríkjunum á háskólaárunum en þetta er í fyrsta skipti sem hún býr annars staðar í Evrópu.

Nálægðin við aðrar borgir og önnur lönd er meðal þess sem henni þykir skemmtilegt við nýju heimkynnin.

„Það er stutt með lest til Amsterdam og Haag. Það er allt öðruvísi að búa á meginlandinu. Við fórum til dæmis í æfingaleiki í Lúxemborg og spiluðum líka við belgískt lið. Það er stutt til annarra landa, sem er mjög skemmtilegt.“

Nánar er rætt við Hönnu í Morgunblaðinu sem kemur út í fyrramálið.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab