Grímuklæddir stuðningsmenn tókust á við lögreglu
Lögregla skarst í leikinn eftir að stuðningsmenn Jagiellonia Białystok komust inn á svæði stuðningsmanna Sunderland á Stadium of Light í 1:…
Lögregla skarst í leikinn eftir að stuðningsmenn Jagiellonia Białystok komust inn á svæði stuðningsmanna Sunderland á Stadium of Light í 1:1-jafntefli liðanna í Evrópudeildinni í gær, þrátt fyrir bann UEFA.
Myndskeið sýndu lögreglumenn fjarlægja stuðningsmenn gestaliðsins og grímuklædda áhorfendur takast á við lögreglu.
Sumir stuðningsmenn Sunderland lýstu atburðunum sem „skelfilegum“, að því er fram kemur í Mirror.
Pólska félagið hafði verið sektað um 20.000 evrur og bannað að selja miða á útileiki eftir óeirðir áhorfenda í leik gegn Levski Sofia 5. nóvember.
Sunderland hafði varað við því að stuðningsmenn gestaliðsins sem fyndust á svæðum heimamanna yrðu fjarlægðir.
„Því miður sýndi Jagiellonia Białystok hvorki vilja til samráðs né samstarfs í þessu máli,“ sagði Sunderland í yfirlýsingu eftir leikinn. Félagið kvaðst ætla að rannsaka hvernig stuðningsmennirnir hefðu komist inn.
Kibice Jagiellonii wyrzucani ze stadionu 😳 🎥 @LimbsSunderland https://t.co/STOAcRjSPr
— Meczyki.pl (@Meczykipl) November 26, 2026
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗