Gamla ljósmyndin: Í tveimur landsliðum í vetrargreinum
Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum.
Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum.
Á árum og áratugum áður var ekki óalgengt að afreksfólk á Íslandi léki fyrir landslið í fleiri en einni íþróttagrein. Var þá jafnvel í tveimur landsliðum á sama ári. Í seinni tíð er þetta afar sjaldgæft en þó ekki alveg óþekkt.
Akureyringurinn Birna Baldursdóttir afrekaði þetta fyrir nokkrum árum síðan en hún var þá lykilmaður hjá KA í blakinu og lykilmaður hjá Skautafélagi Akureyrar í íshokkí. Hér er um að ræða vetrargreinar í báðum tilfellum vel að merkja.
Birna var nógu öflug til þess að landsliðsþjálfarar í báðum greinum vildu nýta krafta hennar og lék hún tugi A-landsleikja í báðum greinum.
Morgunblaðið ræddi við Birnu árið 2011 en þá var hún að keppa með íshokkílandsliðinu í deildakeppni HM. Í lok árs 2010 hafði hún verið valin blakkona ársins af Blaksambandinu og ákveðið hafði verið að hún myndi keppa fyrir Íslands hönd í strandblaki sumarið 2011.
„Til að byrja með æfði ég vitlaust. Ég var mikið að æfa stökkkraftinn út af blakinu en þá fannst mér ég vera of hæg í íshokkíinu. Ég fór þá að skoða crossfit og þar er svo mikil fjölbreytni að það hentar mér vel í þessum aðstæðum. Einn daginn er ég að hugsa um snerpu, annan daginn um stökkkraft og þriðja daginn um styrk. Ég get ekki einblínt á einhvern einn þátt ef ég á að vera fær um að standa mig í báðum greinum,“ sagði Birna þá í samtali við Kristján Jónsson.
Á meðfylgjandi mynd er Birna í landsleik á móti Tyrklandi í Skautahöllinni á Akureyri árið 2017 en myndina tók Þórir Tryggvason sem myndaði mikið íþróttaviðburði fyrir norðan fyrir Morgunblaðið og mbl.is í mörg ár.
Birna er magnað eintak af íþróttmanni en fyrir utan allt þetta státar hún af Íslandsmeistaratitli í júdó.
Birna Baldursdóttir er margfaldur Íslandsmeistari í íshokkí og í blaki. Hún lék tugi landsleikja í báðum greinum.
Hún hefur bæði verið valin Íþróttamaður KA og íshokkíkona SA. Auk þess hefur hún beitt sér fyrir íþróttahreyfinguna á Akureyri með öðrum hætti. Hefur gegn formennsku í Skautafélagi Akureyrar og setið í stjórn ÍBA.
Fjölnir og Skautafélag Akureyrar áttust við á Íslandsmóti kvenna í íshokkí gærkvöldi og mætast aftur í Egilshöllinni í Grafarvogi í dag klukkan 16:45.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗