Færeyingurinn frábær í sigri Valsmanna
Íslandsmeistarar Vals höfðu betur gegn Selfossi, 34:29, í tólftu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í Valsheimilinu í kvöld.
Íslandsmeistarar Vals höfðu betur gegn Selfossi, 34:29, í tólftu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í Valsheimilinu í kvöld.
Valsmenn eru í fjórða sæti deildarinnar með 14 stig en Selfoss er í tólfta og neðsta sæti með eitt.
Valur var ekki í miklum vandræðum með botnliðið í kvöld en staðan í hálfleik var 15:11. Valsmenn juku síðan forskot sitt í þeim seinni.
Bjarni Í Selvindi fór mikinn í liði Vals og skoraði tólf mörk. Gunnar Róbertsson skoraði þá sex. Hjá Selfossi skoraði Hákon Garri Gestsson tíu mörk og Tryggvi Sigurberg Traustason sjö.
Mörk Vals: Bjarni Í Selvindi 12, Gunnar Róbertsson 6, Bjarki Snorrason 3, Allan Norðberg 3, Jón Ásgeir Eyjólfsson 3, Ágúst Ingi Óskarsson 2, Daníel Montoro 1, Andri Finnsson 1, Tjörvi Týr Gíslason 1, Bessi Teitsson 1, Arnór Snær Óskarsson 1.
Varin skot: Jens Sigurðarson 7 (23%), Björgvin Páll Gústavsson 4 (44%).
Mörk Selfoss: Hákon Garri Gestsson 10, Tryggvi Sigurberg Traustason 7, Guðjón Óli Ósvaldsson 6, Hannes Höskuldsson 2, Ragnar Hilmarsson 2, Sveinn Ísak Hauksson 1, Anton Breki Hjaltason 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 12 (26%).
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗