Handtekinn á æfingu og í gæsluvarðhald

David Corrêa da Fonseca, framherji Vasco da Gama, var handtekinn á æfingasvæði félagsins í Rio de Janeiro í gær í tengslum við rannsókn á meintu…

Leikmaðurinn var handtekinn á æfingasvæðinu

Leikmaðurinn var handtekinn á æfingasvæðinu Ljósmynd/Skjáskot

David Corrêa da Fonseca, framherji Vasco da Gama, var handtekinn á æfingasvæði félagsins í Rio de Janeiro í gær í tengslum við rannsókn á meintum tengslum hans við skipulagða glæpastarfsemi, fíkniefna- og vopnasmygl og peningaþvætti.

Samkvæmt Globo fyrirskipaði dómari gæsluvarðhald yfir honum eftir að vísbendingar fundust um að hann hefði reynt að hafa áhrif á rannsóknina með því að bjóða vitnum peninga fyrir að breyta framburði sínum.

Lögreglan rannsakar meint tengsl við glæpasamtökin Comando Vermelho.

Hann neitar aðild að málinu. „David á enga aðild að þessu; þessi skilaboð eru algjörlega slitin úr samhengi,“ sagði lögmaður hans, Silmar Corrêa Junior, við fréttamenn.

Lögfræðiteymi hans hefur mótmælt gæsluvarðhaldinu og segir hann hafa átt samstarf við rannsakendur og farið eftir fyrri fyrirmælum dómstóla.

Vasco sagði að lögfræðideild félagsins væri að aðstoða leikmanninn og að félagið fylgdist grannt með málinu.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab