„Við trúum á hið mannlega“

Ný íslensk streymisveita fyrir hljóðbækur og rafbækur, Bókaveitan, hefur nýhafið göngu sína. Að sögn Stefáns Hjörleifssonar, sem stendur að baki…

Stefán Hjörleifsson vill með nýju veitunni efla íslenska bókmenningu og bæta kjör höfunda. Morgunblaðið/Karítas

Ný íslensk streymisveita fyrir hljóðbækur og rafbækur, Bókaveitan, hefur nýhafið göngu sína. Að sögn Stefáns Hjörleifssonar, sem stendur að baki veitunni, eru mörg tækifæri til vaxtar á íslenskum bókamarkaði, ekki síst þegar kemur að rafbókum.

Hann segir markmiðið vera að efla íslenska bókmenningu, bæta kjör höfunda og annarra rétthafa og fjölga valkostum lesenda.

„Það er alveg pláss fyrir fleiri á markaðnum,“ segir Stefán í samtali við Morgunblaðið.

Veitan leggur megináherslu á íslenskar bókmenntir af ýmsum toga, allt frá glæpasögum og ævisögum til barna- og ungmennabóka, en einnig verður boðið upp á mikið úrval bóka á ensku.

Í upphafi verða nokkrir tugir þúsunda titla í boði en stefnt er að því að þeir skipti hundruðum þúsunda fyrir jól, bæði á íslensku og ensku.

Vilja bæta kjör höfunda

Stefán hefur komið víða við á sviði stafrænnar dreifingar menningarefnis og tók sjálfur þátt í þeirri miklu breytingu sem varð á íslenskum bókamarkaði með tilkomu hljóðbókaveitna fyrir um átta árum.

Hann segir mikinn vöxt hafa orðið í bókageiranum á undanförnum árum en auknar tekjur hafi ekki náð nægilega vel til íslenskra rétthafa. Ekki séu allir höfundar sáttir við þær tekjur sem þeir fá af streymi verka sinna og sumir hafi því takmarkaðan áhuga á að bjóða verk sín á streymisveitum.

Við mótun nýju veitunnar hafi verið tekið mið af þeirri gagnrýni sem komið hefur fram meðal rétthafa. Markmiðið sé að bjóða þeim sanngjarnari kjör en almennt tíðkast á markaðnum, bæði í áskriftarþjónustu og með auknum tekjum í eintakasölu.

Bókaveitan mun bjóða upp á áskriftarþjónustu og sölu á stökum rafbókum og hljóðbókum á svokölluðu bókatorgi. Höfundar og útgefendur geta þannig sjálfir valið hvort bækur þeirra verða í boði í áskrift, eintök seld sérstaklega eða hvort tveggja.

Stefán tekur jafnframt fram að Bókaveitan ætli sér ekki að standa í eigin bókaútgáfu heldur einbeita sér að dreifingu og kynningu bóka.

„Við hyggjumst vinna með rétthöfunum en ekki í samkeppni við þá,“ segir hann.

Rafbækur eiga inni

Stefán telur mikil tækifæri felast í rafbókum, sem notið hafa vinsælda erlendis en ekki náð sambærilegri fótfestu hér á landi.

Hjá Bókaveitunni verður lögð áhersla á að bjóða upp á nýjar íslenskar jólabækur, bæði sem rafbækur og hljóðbækur. Nú þegar er til að mynda hægt að nálgast nýjustu bók Arnaldar Indriðasonar í báðum útgáfum.

Stefán segir einn helsta kost áskriftarþjónustu vera þann að lesendur geti kynnst nýjum höfundum og ólíkum bókmenntagreinum án þess að þurfa að kaupa hverja bók fyrir sig. Aðrir kjósi fremur að kaupa stakar bækur.

Til að byrja með verður hægt að lesa rafbækur í símum og spjaldtölvum en Stefán hefur einnig áhuga á að taka þátt í að þróa þjónustu við notendur lesbretta. Hann segist finna fyrir eftirspurn eftir slíkum lausnum hér á landi.

Framtíð íslenskunnar

Stefáni er umhugað um framtíð íslenskrar tungu og bókmenningar. Hann telur mikilvægt að lesendur hafi greiðan aðgang að íslensku menningarefni á tímum þegar stórar alþjóðlegar streymisveitur hasla sér völl á sífellt fleiri sviðum.

Stefán stóð áður að íslensku tónlistarveitunni tónlist.is og fylgdist með þeim breytingum sem urðu á íslenskum tónlistarmarkaði með tilkomu erlendra streymisveitna. Hann segist nú sjá teikn á lofti um svipaða þróun í bókmenntaheiminum.

Hann leggur áherslu á að hlutverk Bókaveitunnar sé ekki eingöngu að dreifa bókum heldur einnig að hjálpa rithöfundum að finna sína lesendur.

Markmiðið sé að byggja upp þjónustu sem lesendur kunni að meta, höfundar treysti og útgefendur vilji vinna með. Þannig vilji Bókaveitan leggja sitt af mörkum til íslenskrar bókmenningar.

Stefán segist sem tónlistarmaður hafa fylgst með áhrifum gervigreindar á tónlistariðnaðinn og skilja vel áhyggjur rithöfunda af þróun tækninnar. Hér á landi sé gervigreind þegar farin að setja mark sitt á bókaútgáfu, allt frá ritun og þýðingum til upplestrar.

Hann telur að þrátt fyrir örar tækniframfarir muni lesendur áfram kunna að meta mannlega þáttinn í bókmenntum.

Markmiðið sé ekki að streitast á móti tækniþróuninni heldur nýta tæknina til að styðja við mannlega sköpun.

„Við trúum á sköpunina og viljum að tæknin styðji við höfunda, þýðendur og lesara, en komi ekki í stað þeirra,“ segir Stefán.

Hann kveðst bjartsýnn á framtíð góðra íslenskra sagna. „Við trúum á hið mannlega,“ segir hann.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读