Þættir sem koma munu Íslendingum á óvart
„Sumir halda að mest sé að gerast hjá lögreglu um helgar, en fyrir hádegi á miðvikudegi ertu allt í einu í eftirför vegna drukkins ökumanns,“ se…
Mikill viðbúnaður var hjá lögreglunni í miðbæ Reykjavíkur þegar dyravarðamálið svokallaða kom upp. Ljósmynd/Jóhannes Kr.
„Ég vann fyrstu tvær þáttaraðirnar í samstarfi við Heimildina, sem ég er mjög þakklátur fyrir og ég ætla að segja það hér strax í upphafi, eftir það þurfti ég svo að vera á eigin vegum sem var í raun mest tengt ástandi í þjóðfélaginu.“
Með þessum orðum hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson fjölmiðlamaður, sem ekki hefur skirrst við að grípa á verulega erfiðum kýlum samfélagsins um dagana, mál sitt um lögregluþáttaröðina Á vettvangi sem nokkra athygli kveikti í vikunni að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vakti sjálf máls á á Facebook-síðu sinni og mærði á alla vegu.
Jóhannes slær tvær flugur í einu höggi með titlinum, en samtímis þáttum sem skyggnast djúpt undir yfirborð íslenskra lögreglustarfa, ýtir hann nýjum hlaðvarpsmiðli með sama nafni úr vör sem heitir þar með einfaldlega Á vettvangi. Fyrstu tveir þættirnir, í samstarfi við Heimildina, báru þó titlanna Á vettvangi á kynferðisbrotadeildinni og Á vettvangi á bráðamóttökunni og voru upphafsskref Jóhannesar á nýjum miðli … eða nýjum vettvangi.
Að fara einn inn í aðstæður
Jóhannes þarf vart að kynna eftir eljuverk á borð við þætti um daglegt líf fíkla, Panama-skjölin sem enginn vildi kveðið hafa og heimsfaraldurinn og þá er bara fátt eitt talið. Hann hefur lag á að smeygja sér inn, verða fluga á vegg, og verða eðlilegur hluti af lífi þeirra sem hann fjallar um – jafnvel bara einn með myndavél, oft er það heppilegra þegar gera á viðmælendum og viðfangsefnum kleift að vera þeir sjálfir, gleyma myndavélinni, gleyma að þeir munu birtast þjóðinni í heimildarþætti. Segja frá af hjartans einlægni.
Jóhannes segir örlítið frá þessari hárfínu nálgun.
„Ég hef alltaf haft gaman af því í minni blaðamennsku að fara einn inn í aðstæður. Þetta byrjaði þegar ég var ritstjóri Kompásar á Stöð 2. Þá fór ég einn með kameru inn í svartan heim morfínfíklanna, sem þá voru kallaðir, fylgdi fólki eftir í leit að efnum í þess heimi. Þá fannst mér ég ná svo vel til fólks með því að vera einn, ekki með hljóðmann og tökumann með mér. Það sama gerði ég þegar ég gerði Storm, þættina um covid,“ rifjar Jóhannes upp með sínum hæga og rólyndislega talanda manns sem þó starfar í einni hröðustu atburðarás samfélagsins – að greina neytendum fjölmiðla frá samfélaginu sem við hrærumst í.
Hann hefur marga fjöruna sopið þessi og lagt gríðarlega vinnu í að leiða þjóðinni til dæmis bakhliðina á heimsfaraldrinum á Íslandi í ljós. Eitt eru öll mannlegu samskiptin og línurnar ósýnilegu sem ekki má fara yfir, annað er að klippa mörg hundruð tíma af myndefni niður í þáttaröð, niður í einn þátt, niður í nokkurra mínútna kafla. Sjónvarp er erfitt en myndrænt. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Jóhannes fann þörfina fyrir að fara inn í umhverfi á jaðrinum, einn með hljóðnema og myndavél, og, eins og hann lýsir því, „reyna að komast inn í eitthvað sem enginn blaðamaður hafði fengið aðgang að áður og Stormur opnaði mér þær dyr, inn í lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Þessi hugmynd kom upp í spjalli okkar Ævars Pálma [Ævarssonar, nú aðstoðaryfirlögregluþjóns í rannsóknardeild lögreglunnar] sem þá var yfir kynferðisbrotadeildinni og úr varð að ég fór inn í deildina og kláraði þá seríu,“ segir Jóhannes frá.
Í öllum skúmaskotum á bráðamóttöku
Upp úr þessu urðu til fimm þættir í samstarfi við Heimildina og í framhaldinu tók Jóhannes til við bráðamóttökuna sem freistaði hans og var þar „í öllum skúmaskotum“, eins og hann orðar það, í fjóra mánuði. Það var önnur fimm þátta röð og þá tók það verkefni við sem nú birtist, Á vettvangi.
Þættirnir um lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og störf hennar verða að minnsta kosti tólf að sögn Jóhannesar. „Ég er búinn að vera við tökur með hléum í eitt og hálft ár og fylgjast með starfinu í öllum deildum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Jóhannes sem alltaf leitar mannlega þáttarins í öllu, hvort sem þar eru sprautufíklar, smitrakningarteymi í heimsfaraldri eða alvarlega slasað fólk og læknar að bjarga því sem hægt er á bráðamóttöku.
„Þegar maður hittir fólk við viðkvæmar aðstæður og kynnist því, fólki sem er að fást við viðkvæm mál í samfélaginu, þarf maður tíma til að opna það og fá það til að tala mannamál. Þegar það tekst, þegar maður sér þessa mannlegu hlið á manneskjunni í lögreglubúningnum og nær til hennar, þá koma sögurnar,“ segir hann.
Rafn, aðalvarðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sést hér ræða við grímuklæddan lögreglumann, en Rafn kemur mikið við sögu í fyrsta þætti Á vettvangi sem finna má á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Ljósmynd/Jóhannes Kr.
Embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er að sögn Jóhannesar eins og stór verksmiðja með færibönd sem ganga inn og út aftur. Málafjöldinn er gríðarlegur, um það hefur nóg verið fjallað í fjölmiðlum síðustu 20 ár, og hvert mál hefur sinn lagalega og reglugerðabundna farveg. „Það er verið að handtaka fólk fyrir einhver afbrot eða mál sem eru í rannsókn í miðlægri eða öðrum deildum lögreglunnar, fólk er að koma og leggja fram kærur, lögreglumenn að fara í húsleitir um allan bæ, málin streyma inn og út. Maður fær þarna mikið af viðkvæmum upplýsingum sem maður getur ekki rætt við neinn nema lögreglumennina í því máli, ég er auðvitað bundinn trúnaði um mjög margt,“ útskýrir þáttagerðarmaðurinn.
Geturðu haldið ritstjórnarlegu sjálfstæði innan slíkra þagnarmúra?
Jóhannes segir sjálfstæði hans algjört og óskorað. „Embættið horfir á persónuverndarsjónarmið, rannsóknarhagsmuni og vernd lögreglumanna eða starfsmanna sinna, ég birti engin nöfn og ég þarf að bera ábyrgð á að ekkert komi fram sem skaðar rannsókn einhvers máls hjá embættinu, en fyrir utan það er ég ritstjóri,“ segir Jóhannes.
Hann segir það hafa hjálpað mikið að hafa unnið þáttaröðina með Heimildinni um starf kynferðisbrotadeildar.
Þú veist ekkert hvað bíður þín
„Ég þekkti þá orðið embættið talsvert mikið, en síðan, þegar þessi hugmynd um að fylgjast með öllum deildum lögreglunnar, kom upp gekk alveg fljótt fyrir sig að fá það leyfi en eins og ég var að tala um áðan, að verða þessi fluga á vegg, þannig að maður sjái bara fólkið, starfsfólkið hætti að taka eftir mér, það tekur tíma, en þá nær maður besta efninu. Aftur og aftur sýndi það sig að þegar ég var búinn að verja miklum tíma með starfsfólki á hverri deild hætti það að taka eftir mér og ég get sagt þér að margt í þessum þáttum á eftir að koma almenningi á óvart um það í hvernig samfélagi hann lifir. Lögreglan er sjaldan kölluð til þegar eitthvað gleðilegt á sér stað,“ segir Jóhannes alvarlegur í bragði.
Hann segir verkefni lögreglu mörg hver erfið, „þau eru erfið, þau eru skrýtin, þegar þú byrjar á vakt veistu ekkert hvað bíður þín sem er mikill kostur við starfið, en að sama skapi getur það verið hræðilegt slys eða einhver hræðilegur atburður sem lögreglumenn, jafnvel nýútskrifaðir, þurfa að takast á við þann daginn.“
Allt í einu kemur dagurinn sem þú gleymir aldrei, kannski bara einhver mánudagur í vinnunni.
„Heldur betur,“ samsinnir Jóhannes, „sumir halda að mest sé að gerast hjá lögreglu um helgar, en fyrir hádegi á miðvikudegi ertu allt í einu í eftirför vegna drukkins ökumanns einhvers staðar í umferðinni, heimilisofbeldi eða hvaðeina. Og eins og þú segir, það getur verið dagurinn sem breytir öllu, kannski lífi lögreglumanns til frambúðar. Sumt sem lögreglumenn upplifa þurfa þeir að glíma við allt lífið,“ heldur hann áfram.
Hvernig finnst þér, svona hálfvegis utanaðkomandi, íslenska lögreglan stödd í dag með mannafla og tök sín á þjóðfélaginu?
Jóhannes hugsar sig stuttlega um áður en hann bendir á þá staðreynd að það gerist reglulega á vakt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að allir bílar séu uppteknir.
„Það heyrist mikið í talstöðinni, allt upptekið á Hverfisgötu, allt í Kópavogi, á Vínlandi eða í Hafnarfirði. Lögreglan hefur sjálf talað um að það þurfi að fjölga, fólki fjölgar á Íslandi og í Reykjavík,“ svarar hann. „Svo er það hitt að verkefnin hafa breyst síðustu ár, nú er hnífaburður orðinn mjög algengur og fólk á eftir að sjá það í þessum þáttum að ég fylgi fjölmörgum hnífamálum eftir, sumum mjög alvarlegum,“ segir Jóhannes með áherslu.
Andlát í heimahúsum
Nú gerðir þú þættina Storm þar sem þú talaðir við fjölda fólks víða, það hleypti þér að sér, þú fékkst gríðarlegar upplýsingar sem var miðlað að því leyti sem hægt var miðað við persónuverndarsjónarmið. Hvernig var það verkefni miðað við umfjöllunina núna um lögregluna?
„Þetta verkefni núna hefur tekið á mig,“ segir Jóhannes og þagnar í stutta stund. „Ég hef verið á vettvangi þegar slæmir hlutir gerast og fengið upplýsingar um hitt og þetta sem er ekki hægt að tala um. Lögreglan sinnir andlátum í heimahúsum, stundum mörgum sinnum á dag, þetta eru mál sem lögreglumenn þurfa að fara í,“ heldur hann máli sínu áfram og ræðir því næst ofbeldisbrot.
Jóhannes var við upptökur með lögreglunni í eitt og hálft ár með hléum og fylgdist með fjölmörgum aðgerðum hennar. Hér handtaka lögreglumenn aðila sem reyndi að fjárkúga mann, en um málið mun Jóhannes fjalla í komandi þáttaröð sinni. Ljósmynd/Jóhannes Kr.
„Þessi alvarlegu ofbeldisbrot, ég tala nú ekki um kynferðisbrotin sem streyma þarna inn. Þessi mál taka á lögreglumennina sem segja mér svo frá. Þegar maður hittir lögreglumenn sem koma af erfiðum vettvangi og fær allar þessar upplýsingar í einni bunu. Ég hef setið svona viðrunarfund eftir erfiða vettvanga og tekið það mikið inn á mig. Þessi félagastuðningur, sem ég á eftir að fjalla um í þáttunum, er gríðarlega mikilvægur fyrir lögreglumenn, að geta talað um málin sem þeir lenda í til að vinna úr þeim. En þetta hefur alveg tekið á hjá mér og ég hef alveg fundið fyrir þessum andlega þunga sem getur fylgt þessu starfi ef þú gerir ekkert í því,“ segir Jóhannes í fullri hreinskilni – sem raunar er ekkert nýtt miðað við þau skipti sem sá sem hér skrifar hefur tekið hann tali.
Næsta verkefni jafnvel snúnara
Jóhannes Kr. Kristjánsson tók það stóra skref að byggja upp sinn eigin fjölmiðil. Á vettvangi heldur úti vefsíðu sem er ekki eiginleg fréttasíða heldur er henni ætlað að halda utan um efni þáttanna. Allir þættir eru öllum opnir með auglýsingum – auglýsendur eru líka að reka sitt og berjast í bökkum, lífið er eitt tvíeggjað sverð – en áskrifendur fá þættina auglýsingalausa í sólarhring áður en þeir eru gefnir út og ýmislegt aukaefni með. Áskrift þarf að borga sig í báðar áttir.
Freistandi er að spyrja út í næsta verkefni Jóhannesar sem hann segir blaðamanni auðvitað frá, bara off the record eins og kallað er. Það verkefni er hann fyrir löngu tekinn að kortleggja og það verkefni gæti vel orðið vandmeðfarnara en jafnvel lögreglan – og komi lögreglan þjóðinni á óvart þá er alveg ljóst að næsta mál Jóhannesar Á vettvangi mun koma verulega á óvart. Við spyrjum að leikslokum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



