Tómast tilneyddur til lokunar vegna framkvæmdanna

„Við erum búin að bíða í tvö ár og ég get ekki tapað meiru. Það er betra að loka. Ég hef eitthvað betra að gera við peningana á meðan þessar fra…

Aðgengi hefur verið skert að veitingastöðum Tómasar Boonchang, gjarnan kenndan við Ban Thai, í tvö ár. Hann hefur nú lokað öðrum veitingastaðanna. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/mbl.is Jim Smart

Veitingamaðurinn Tómas Boonchang, sem gjarnan er kenndur við veitingastaðinn Ban Thai á Laugavegi 130, segist tilneyddur til að loka veitingastaðnum Mixed, sem stendur andspænis Ban Thai á Hverfisgötu við Hlemm, vegna framkvæmda á svæðinu. Hann segir Ban Thai einnig hafa orðið fyrir miklum samdrætti.

Aðgengi að veitingastöðunum hefur verið skert í tvö ár. Framkvæmdirnar sem gert hafa Tómasi erfitt fyrir í rekstrinum fela í sér endurgerð Hlemmtorgs og uppbyggingu innviða fyrir borgarlínu samhliða umfangsmikilli endurnýjun veitukerfa.

Mixed hefur notið vinsælda sem hádegisverðarstaður og mun staðnum vera lokað 1. desember.  Aðdáendur hans þurfa þó ekki að örvænta því ef allt gengur að óskum hyggst Tómas opna staðinn að nýju þegar framkvæmdunum lýkur.

Einungis 30-50 metrar eru á milli staðanna.

Einungis 30-50 metrar eru á milli staðanna. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

„Get ekki tapað meiru“

„Við erum búin að bíða í tvö ár og ég get ekki tapað meiru. Það er betra að loka. Ég hef eitthvað betra að gera við peningana á meðan þessar framkvæmdir eru í gangi,“ segir Tómas.

Ban Thai á dyggan aðdáendahóp. Staðurinn er í fínni kantinum með fjölbreyttan matseðil og áherslu á hefðbundna taílenska matargerð en Mixed hefur boðið upp á taílenskan mat í óformlegri og hversdagslegri umgjörð.

Umferðargata skilur staðina að en aðeins eru um 30–50 metrar á milli þeirra. Skert aðgengi að báðum veitingastöðunum á framkvæmdatímanum hefur haft veruleg áhrif á rekstur þeirra.

Þessi einblöðungur blasir við viðskiptavinum Mixed við komuna á staðinn.

Þessi einblöðungur blasir við viðskiptavinum Mixed við komuna á staðinn. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Reynir að halda Ban Thai opnum

Tómas segir verklokum ítrekað hafa verið frestað miðað við þær áætlanir sem honum voru kynntar í upphafi. Honum sé nú tjáð að framkvæmdunum eigi að ljúka á næsta ári.

„Þeir segja núna að þessu ljúki 2027. Viðskiptin hafa minnkað rosalega. Líka á Ban Thai þar sem viðskiptin hafa minnkað um 40% en við ætlum ekki að loka Ban Thai núna. Ég ætla að reyna allt hvað ég get til að halda Ban Thai opnum,“ segir Tómas.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab