Töldu aftur og aftur: „Ég lít ekki á mig sem hetju“

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar vann mikið afrek á miðvikudagskvöld þegar henni tókst að ná sautján manns úr sjónum eftir að skip þeirra sökk. Fj…

Brynhildur Ásta, flugmaður hjá Gæslunni, var í áhöfninni sem stóð að björgun skipverja fyrir austan land á miðvikudagskvöldið. mbl.is/Ásdís

„Má ég knúsa þig?“ segir starfsmaður Gæslunnar þegar flugmaðurinn Brynhildur Ásta Bjartmarz gengur eftir ganginum með blaðamanni í hádeginu á föstudag í höfuðstöðvum Landhelgisgæslunnar, tveimur dögum eftir hið mikla björgunarafrek sem er á allra vörum. Starfsfólk Landhelgisgæslunnar, og sér í lagi þyrluáhöfnin, er að vonum enn að melta atburðarásina sem varð til þess að öll áhöfn Jökuls ÞH komst um borð í þyrluna, þar af fjórtán á lífi. Brynhildur segist aldrei munu gleyma þessu kvöldi, svo lengi sem hún lifir.

Enginn efi í neinum

Brynhildur var á vakt miðvikudaginn 25. nóvember þegar útkallið kom í talstöðina.

„Ég var að leggja bílnum við Bónus þegar stöðin pípir og ég sé að er þetta á hæsta forgangi. Ég fæ að vita staðsetningu skips sem kominn sé leki að. Á þeim tímapunkti var skipið ekki sokkið. Ég fór beint á flugvöllinn og smátt og smátt koma fleiri upplýsingar og það er brjálað að gera á öllum vígstöðvum,“ segir Brynhildur, en áhöfnin flýtti sér sem mest hún mátti.

TF-GRO hélt af stað austur með sex manns um borð, en ferðin var löng og ströng. Fljótlega var ljóst að brjóta þurfti reglur um að ekki mætti fara lengra en tuttugu mílur frá landi, en skipið Jökull ÞH var þrefalt lengra frá, eða sextíu mílur frá landi. Venjulega eru fimm í áhöfn, en í þetta sinn kom með auka sigmaður, og voru þau því sex.

„Ég spurði strákana, hvern og einn, hvort þeir væru tilbúnir að fara. Það skiptir máli að allir séu tilbúnir; og allir sögðu já. Það var ekki nokkur efi,“ segir Brynhildur sem flaug þyrlunni ásamt flugstjóranum Jens Sigurðarsyni.

„Á leiðinni var komin nokkuð góð mynd af því að við myndum sennilega vera fyrst á staðinn þó að maður vonaði að einhver annar kæmi á undan. Við áttuðum okkur á því að við værum að fara að hífa sautján manns úr sjónum,“ segir Brynhildur, en þyrlan er hönnuð fyrir 21 mann.

Bjó sig undir hið versta

Brynhildur segir að margt hafi farið í gegnum hugann á leiðinni austur.

„Maður er að vonast eftir hinu besta en býr sig undir hið versta. Við reyndum að sjá hlutina fyrir frá öllum sjónarhornum til að geta undirbúið okkur fyrir allar aðstæður. Við vorum um tvo tíma á Höfn og veltum stanslaust fyrir okkur bestu leiðunum. Ég var undarlega róleg þrátt fyrir aðstæður, enda gagnast ekki annað. Þetta er það sem við búum okkur undir og æfum. Þetta er svona útkall sem maður vonar að lenda aldrei í á sínum starfsferli og sem betur fer gerist það afskaplega sjaldan. Öll þjálfun okkar byggist á að við getum tekist á við svona aðstæður,“ segir hún.

Brynhildur stendur hér við þyrluna sem hún flaug í björgunarleiðangrinum.

Brynhildur stendur hér við þyrluna sem hún flaug í björgunarleiðangrinum. mbl.is/Ásdís

„Auðvitað er adrenalín í gangi en við erum mjög fókuseruð á að leysa verkefnið og finna leiðir til þess að það sé hægt.“

Sumir hafa sagt að þetta hafi verið mikil háskaför, jafnvel að þið hafið anað út í opinn dauðann. Hvað segir þú við þessu?

„Ég hef heyrt þetta og skil hvaðan þetta kemur, en ég er hins vegar alls ekki sammála því. Það er alltaf einhver hætta í þessu starfi og við vitum að það geta komið upp bilanir. Ég treysti á mannskapinn, á þjálfunina okkar og vélina. Ég hef alveg verið hrædd í vinnunni, og ég held að það sé heilbrigt fyrir okkur að vera ákveðið hrædd til að halda okkur á tánum. Einhverra hluta vegna fann ég ekki fyrir hræðslu þetta kvöld, gagnvart mér eða minni áhöfn. Ég var hins vegar með hnút í maganum og afskaplega hrædd um fólkið sem ég vissi að væri í sjónum. En þetta var enginn sjálfsmorðsleiðangur.“

Tveir eftir í sjónum

Þegar þyrlan kom að skipverjum í sjónum, bundnum saman í tveimur hópum, fann áhöfnin fyrir létti.

„Til allrar hamingju og okkur til mikillar gleði þá sáum við strax hóp af fólki. Við vorum svo þakklát fyrir að þau væru í hópum og það var ótrúlega vel gert hjá þeim. Það auðveldaði okkur því þá þurftum við ekki að fara að leita heldur gátum gengið beint til verks og híft upp mannskapinn,“ segir hún. 

„Ég sá að við gætum ekki tekið alla í einu og við flugum í 12-15 mínútur til þess að brenna eldsneyti. Tveir urðu eftir í sjónum á meðan. Skipið sem var rétt hjá hafði auga með mönnunum og við spurðum hvort þau gætu komið línu til fólksins. Það var það hræðileg tilhugsun að skilja þessa tvo eftir, en um leið og við sáum okkur það fært fórum við til baka og skipið hætti við því það var auðveldara fyrir okkur að ná til þeirra.“

Mikil ringulreið um borð

Blaðamaður kíkti inn í þyrluna í heimsókninni og undraðist hvernig hægt hefði verið að koma þar fyrir öllu þessu fólki. Plássið virkaði ekki mikið. Brynhildur vill ekki lýsa aðstæðum skipverja um borð, en segist ímynda sér að tilfinningar þeirra hafi sveiflast á milli gleði og sorgar.

„Það var mikil ringulreið og mikið um að vera og við töldum aftur og aftur hvort allir væru ekki örugglega um borð, að við værum með alla sautján. Ég vildi einbeita mér að því að koma öllum upp á land, til Egilsstaða. Það var mjög þröngt um manninn aftur í og fólk sat í hnipri. Ég held að fáir geti ímyndað sér hvernig það er að vera í sjó í allan þennan tíma. Fólki var mjög kalt og við vorum með einhver hitateppi sem við klipptum niður til að geta deilt niður á skipverja. Svo gátum við gefið þeim drykki og einhverja orku,“ segir Brynhildur, en á Höfn fékk áhöfnin mat og svo gos og súkkulaði til að hafa með.

„Það var mikill viðbúnaður á Egilsstöðum, en við vorum um fjörutíu mínútur þangað.“

Nú unnuð þið algjört þrekvirki þarna. Hvernig er að vera ein af sex hetjum landsins?

„Það er eiginlega alveg yfirþyrmandi, í hreinskilni sagt. Ég er ótrúlega þakklát fyrir allar kveðjurnar sem ég hef fengið og er meyr yfir því. Ég lít ekki á mig sem hetju og finnst það óþægilegt,“ segir Brynhildur, en hún er önnur tveggja kvenna í þyrlusveitinni og eini flugmaðurinn, en hin er læknir.

Mun aldrei gleyma þessu

Er þetta erfiðasta útkall sem þú hefur farið í?

„Að sumu leyti, en að öðru leyti ekki. Ég geri mér samt grein fyrir því að ég er ekki að fullu búin að melta þetta útkall og gera upp tilfinningar. Í augnablikinu finnst mér þetta ekki það erfiðasta sem ég hef farið í, en þegar börn eiga í hlut spilar manns eigin reynsla inn í. En þetta var hins vegar mjög erfitt og afskaplega krefjandi útkall. Ég finn fyrir því að þetta er yfirþyrmandi og ég finn meira fyrir því í dag en í gær,“ segir Brynhildur og að mikilvægt hafi verið að skilja engan eftir, lífs eða liðinn.

„Það var nokkuð sem við gátum alls ekki hugsað okkur. Það skipti okkur gríðarlegu máli að koma öllum heim. Við erum ótrúlega þakklát fyrir þessa fjórtán sem lifðu og ótrúlega sorgmædd yfir þessum þremur sem við gátum ekki bjargað,“ segir hún.

Ítarlegt viðtal er við Brynhildi í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读