Þeir fórust með Jökli ÞH 299

Þrír menn létust er skipið Jökull ÞH 299 fórst austur af landinu á miðvikudagskvöld. Þeir hétu Aðalsteinn Steinþórsson, 59 ára, búsettur á Húsavík, Eggert Ellertsson, 41 árs, búsettur í Reykjavík, og Jacek Belina, 52 ára, búsettur á Húsavík.

Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjóri á Jökli, kveðst ætla að flagga í hálfa stöng við heimili sitt næstu þrjá daga og þrjár nætur til minningar um félaga sína.

Pawel Samilo, einn skipverjanna fjórtán sem komust af, segir þá þrjá alla hafa verið frábæra sjómenn og enn betri manneskjur. „Minning þeirra mun lifa að eilífu. Í raun voru þetta ekki bara vinir mínir heldur voru þeir mér eins og fjölskylda,“ segir Pawel.

Aðalsteinn Steinþórsson

Aðalsteinn Steinþórsson

Jacek Belina

Jacek Belina

Eggert Ellertsson

Eggert Ellertsson

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Helstu fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读