„Það á að leita allra leiða í því efni“
Njáll Trausti segir að bygging flugskýlis á Akureyrarflugvelli þurfi að hafa nokkurn aðdraganda.
Langhelgisgæslan Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRO, var send á vettvang. Unnu áhafnarmeðlimir mikið björgunarafrek þegar þeim tókst að bjarga 14 sjómönnum úr hafinu við illan leik, við afar erfiðar og krefjandi aðstæður. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
„Það hefur verið eitt helsta baráttumál mitt á mínum tíu ára þingferli að bæta við fjórðu þyrlu Landhelgisgæslunnar, staðsetja hana á Akureyri og efla þannig áfallaþol og björgunargetu samfélagsins. Það er því mjög gleðilegt að sjá þetta verða að veruleika,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið.
Fagnar ákvörðuninni
Hann fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hefja vinnu við að fá fjórðu þyrluna fyrir Landhelgisgæsluna hingað til lands, en það var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Þótt um gleðitíðindi sé að ræða segir Njáll Trausti það vera mjög sorglegt að málið skuli loksins fara í gegn undir þeim kringumstæðum sem raunin sé, en ákvörðunin var tekin eftir hið hörmulega sjóslys sem varð á miðvikudaginn sl. þegar þrír sjómenn fórust með fiskiskipinu Jökli ÞH þar sem skipið var að veiðum út af Austfjörðum.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗