„Maður er í svo mikilli búbblu“

Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari!

Ævar Þór Benediktsson er fjölhæfur barnabókahöfundur og hugmyndaríkur.

Ævar Þór Benediktsson er fjölhæfur barnabókahöfundur og hugmyndaríkur. Morgunblaðið/Hákon Pálsson

Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari, er nýbúinn að lesa upp fyrir börn úr bók sinni Teiknimyndaránið þegar blaðamaður nær tali af honum, snemma morguns í byrjun nóvember. „Lesturinn var kl. 8.30 þannig að ég fékk mér morgunkaffibollann á sama tíma og ég var að lesa upp. Vakti þau á sama tíma og sjálfan mig,“ segir Ævar, léttur í bragði.

Hann er spurður að því hvort þetta sé ekki með því skemmtilegra sem hann geri, að lesa upp fyrir börn, og svarar því játandi. „Maður er svo mikið í búbblu þegar maður er að skrifa, veit ekki hvort hlutirnir eru að virka og það er hættulegt þegar maður sjálfur fer að hlæja of mikið að eigin bröndurum. Það er því mjög gott að mæta fullum sal af börnum og heyra að það sem maður er að gera virkar,“ segir Ævar. Það sé líka ákveðinn línudans að átta sig á hvað börnum finnist fyndið eða skemmtilegt og hvað ekki. „Maður reynir að finna rétta tóninn þannig að allir geti hlegið að einhverju.“

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读