Nadía Sif: „Ég bjó á Ítalíu í um þrjá mánuði“

Ítalskar pítsur slá í gegn í Reykjavík!

Það er margt spennandi í gangi hjá Pizza Popolare.

Það er margt spennandi í gangi hjá Pizza Popolare. Samsett mynd/Ljósmynd/Aðsend

Það er margt spennandi að gerast hjá Pizza Popolare þessa dagana. Pítsastaðurinn hefur opnað nýjan stað í Mathöll Höfða undir nafninu Spacca by Popolare og kynnt nýjan matseðil á staðnum í Pósthús Mathöll. Nadía Sif Líndal, markaðsfulltrúi staðanna tveggja, segir viðtökurnar hafa verið góðar.

„Það er allt á fullu þessa dagana. Við vorum að opna Spacca by Popolare og fólk hefur tekið nýja staðnum mjög vel,“ segir Nadía.

Nadía Sif er markaðsfulltrúi Pizza Popolare og Spacca by Popolare.

Nadía Sif er markaðsfulltrúi Pizza Popolare og Spacca by Popolare. Ljósmynd/Aðsend

Hvað geturðu sagt okkur um Pizza Popolare?

„Pizza Popolare er alvöru ítalskur pítsastaður í Pósthús Mathöll í miðbæ Reykjavíkur. Við bjóðum upp á Pizza Napoletana Contemporanea, nútímalegar napólískar pítsur.“

Hvaðan kemur áhugi þinn á mat?

„Ég bjó á Ítalíu í um þrjá mánuði og eftir að ég kom heim átti ég rosalega erfitt með að finna pítsur sem voru nákvæmlega eins og þar. Svo fann ég Pizza Popolare, sem er með pítsur eins og ég var vön að borða á Ítalíu, með alvöru hráefnum og engum óþarfa aukaefnum. Það er ekki auðvelt að finna á Íslandi.“

Viðurkenning þriðja árið í röð

Voruð þið ekki að fá viðurkenningu nýverið?

„Jú, við fengum viðurkenninguna Excellent Pizzeria frá 50 Top Pizza fyrir árið 2026. Pizza Popolare var fyrsti íslenski pítsastaðurinn til að hljóta hana árið 2024 og við erum ótrúlega þakklát fyrir að fá hana þriðja árið í röð.

50 Top Pizza er alþjóðlegur listi yfir fremstu pítsastaði heims, þar sem meðal annars er horft til gæða hráefna, hefðar, handverks og heildarupplifunar.“

Pizza Popolare hlaut viðurkenninguna Excellent Pizzeria frá 50 Top Pizza fyrir árið 2026, þriðja árið í röð. Ljósmynd/Aðsend

Smá hiti á köldum dögum

Hvað er í tísku þegar kemur að pítsum í vetur?

„Ég myndi segja Nduja og Diavola. Þær eru báðar svolítið sterkar og hita mann upp á köldum vetrardögum,“ segir Nadía.

Á Nduja-pítsunni eru San Marzano-tómatar, burrata stracciatella, fersk basilíka og nduja, sterk ítölsk pylsa. Á Diavola eru San Marzano-tómatar, mozzarella, sterkt salami og chiliflögur.

Hvað er helst fram undan hjá ykkur?

„Eins og kom fram í byrjun erum við spennt fyrir nýja matseðlinum og auðvitað nýja staðnum. Á matseðlinum höldum við í vinsælustu pítsurnar en bætum líka við nokkrum nýjum sem við hlökkum til að kynna fyrir gestum.“

Pizza Popolare kynnti nýverið nýjan matseðil en vinsælustu pítsurnar eru að sjálfsögðu enn á boðstólum. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Matur」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读