Fundu bestu pítsu í heimi á Íslandi

Bandaríska ferðaparið Brian og Steph hefur smakkað hundruð pítsa á ferðalögum sínum um Evrópu og í raun um allan heim. Sú besta sem þau hafa nok…

Brian og Steph segjast hafa fengið bestu pítsu ævinnar á Flatey Pizza í Reykjavík. Samsett mynd/Skjáskot Instagram

Bandaríska ferðaparið Brian og Steph hefur smakkað hundruð pítsa á ferðalögum sínum um Evrópu og í raun um allan heim. Sú besta sem þau hafa nokkru sinni fengið var þó hvorki á Ítalíu né í Frakklandi heldur á Flatey Pizza í Reykjavík.

Parið deilir ferðaráðum og myndböndum á samfélagsmiðlum undir nafninu Brian & Steph. Í myndbandi um íslensku pítsuna byggja þau upp nokkra eftirvæntingu áður en þau upplýsa hvar þau fundu hana.

Ekki á Ítalíu, ekki í Frakklandi, ekki í Bandaríkjunum, Grikklandi eða Sviss. Svarið er Ísland.

„Við fengum bestu pítsu ævinnar á Íslandi!“ skrifa þau við færsluna.

Þau virðast gera ráð fyrir að fullyrðingin geti vakið viðbrögð því þau taka sérstaklega fram að þau hafi smakkað hundruð ólíkra pítsa víðs vegar um heiminn. Pítsan í Flatey hafi þó borið af og þau hvetja fólk sem hyggur á Íslandsferð til að vista ábendinguna.

Fleiri taka undir

Í athugasemdum við færsluna taka fleiri undir lofið um íslenskar pítsur og deila eigin uppáhaldsstöðum.

Einn nefnir pítsu á Systrakaffi á Kirkjubæjarklaustri með nokkrum ostategundum, þar á meðal gráðosti, sem hafi verið borin fram með íslenskri sultu. Annar segist hafa fengið einhverja bestu pítsu sem hann hafi smakkað hjá Horn Brugghúsi á Höfn.

Enn aðrir nefna Reykjavík Pizzeria og Black Crust. Einn þátttakandi í umræðunni hefur sína eigin skýringu á ágæti íslensku pítsunnar: Hann vill að áleggið sé vel bakað, helst næstum brennt, en ekki enn blautt þegar pítsan kemur á borðið.

Ísland heillaði ferðaparið

Brian og Steph eru frá Bandaríkjunum og dvöldu í alls 14 mánuði í Evrópu og Bretlandi, þar sem þau ferðuðust og unnu á netinu. Á ferðabloggi sínu og samfélagsmiðlum birta þau ferðaleiðir, ráðleggingar og frásagnir af stöðum sem þau hafa heimsótt.

Ísland hefur fengið talsvert pláss í færslum þeirra eftir ferð um landið. Þau óku hringveginn rangsælis og segja þá tilhögun hafa hentað sér vel. Þannig hafi þau fyrst heimsótt fjölfarna staði á Suðurlandi en endað ferðina á afskekktari slóðum þar sem færri voru á ferð.

„Við vissum að Ísland væri fallegt en ekki að það væri SVONA fallegt,“ skrifa þau í einni færslunni.

Meðal gönguleiða sem þau mæla sérstaklega með eru leiðir að Svartafossi, Múlagljúfri, Stuðlagili og Grundarfossi, auk göngu á Grábrók. Náttúran hefur því greinilega heillað þau, en pítsan í Reykjavík fær ekki síður eftirminnileg meðmæli.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab