Ísland í fjórða sæti á HM
Íslenska kokkalandsliðið á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg. Liðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum og hafnaði í fjórða sæti samanlagt, sem er besti árangur Íslands á mótinu frá upphafi. Ljósmynd/Mummi Lú
Íslenska kokkalandsliðið hafnaði í fjórða sæti á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg og náði þar sínum besta árangri á mótinu frá upphafi. Liðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum. Svíþjóð varð heimsmeistari, Noregur hafnaði í öðru sæti og Singapúr í þriðja. Þetta var tilkynnt rétt í þessu á verðlaunahátíð mótsins í Luxexpo-höllinni í Lúxemborg.
„Við ætluðum alla leið og liðið stóð sig stórkostlega. Nú er bara að bíða eftir niðurbrotinu á einkunnum og sjá hvar við stöndum,“ sagði Þórir Erlingsson, framkvæmdastjóri íslenska kokkalandsliðsins, í samtali við mbl.is þegar fyrstu þrjú sætin höfðu verið tilkynnt.
Ísak Aron Jóhannsson er fyrirliði íslenska liðsins og Georg Arnar Halldórsson þjálfari þess. Ísland hefur áður tvisvar náð þriðja sæti á Ólympíuleikunum í matreiðslu, árin 2020 og 2024.
Þórir Erlingsson, framkvæmdastjóri íslenska kokkalandsliðsins, ásamt liðinu og fylgdarliði þess. Ljósmynd/Mummi Lú
Tvenn gull í keppnisgreinum
Íslenska liðið keppti í tveimur greinum á mótinu. Á laugardag eldaði það þriggja rétta kvöldverð fyrir 110 gesti í Restaurant of Nations. Á þriðjudag tók við Chef’s Table, þar sem liðið bar fram hátíðlega máltíð og kynnti hugmyndina að baki réttunum.
Fleiri en eitt lið geta hlotið gull í hvorri keppnisgrein. Það er samanlagður stigafjöldi úr báðum greinum sem ræður lokaröðinni og því hvaða lið verður heimsmeistari.
Íslenska liðið fékk einnig gull í báðum greinum árið 2014 og varð þá í fimmta sæti. Á síðasta heimsmeistaramóti, árið 2022, hafnaði Ísland í sjötta sæti.
Héldu ró sinni þegar rafmagnið brást
Fyrri keppnisdagurinn reyndi á yfirvegun íslenska liðsins þegar upp komu rafmagnsvandamál í keppniseldhúsinu. Mótshaldarar brugðust við með því að seinka framreiðslu hjá öllum liðum um hálftíma.
Georg Arnar var ánægður með viðbrögð liðsins og frammistöðuna þegar þeim keppnisdegi lauk.
„Dagurinn gekk mjög vel og liðið stóð sig frábærlega þrátt fyrir ákveðna tæknilega erfiðleika hjá mótshöldurum,“ sagði hann í tilkynningu eftir keppnina.
Hálendið veitti innblástur
Íslenska hálendið var leiðarstef liðsins í Chef’s Table. Hráefni, framsetning og borðbúnaður áttu saman að segja sögu um tengsl lands og þjóðar.
Meðal réttanna voru bleikja gljáð með dashi og svartri sítrónu, reykt ýsa með fenníku, sellerírót og epli og gufusoðið hnúðkál fyllt með grænum baunum og morkilsveppum. Með íslensku mjólkurbrauði var meðal annars borið fram þeytt smjör með þurrkuðum steinbít og sólblómafræjum.
Leirlistakonan Aldís Bára Einarsdóttir gerði stærstan hluta borðbúnaðar liðsins og myndaði handverk hennar umgjörð um marga keppnisréttina.
Fréttin hefur verið uppfærð.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
