„Þetta eru einu kökurnar sem ég nenni að baka“
Hefur þú heyrt um Gítokökur?
Vala Magnúsdóttir, verkefnastjóri í A4, deilir uppskrift að sínum uppáhaldssmákökum sem kallast Gítokökur.
Hver er eftirlætissmákakan þín?
„Mínar uppáhaldsjólasmákökur eru frá ömmu Dódó og kallast Gítokökur,“segir Vala og bætir við:
„Ég hef hef bara séð þær í minni fjölskyldu. Þetta eru smjördeigskökur með marengs. Þetta eru einu kökurnar sem ég nenni að baka og finnst hluti af jólunum.
Gítokökur
- 200 g hveiti
- 200 g smjör
Hnoðið vel saman og geymið í kæli.
- 2 bollar sykur
- 2 stífþeyttar eggjahvítur
Þeytið vel saman.
- Fletjið smjördeigið út, 5 mm að þykkt. (Auðveldara er að vinna með deigið í mörgum litlum pörtum).
- Smyrjið marengsinum á helminginn af smjördeiginu og brjótið síðan hinn helminginn yfir.
- Skerið í litla búta, um það bil 2x2 sm, og raðið á plötu.
- Bakist við 180 gráður á celcíus í ca. 20 mínútur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
