Myndskeið sýnir mikla ringulreið í skipinu
Upplýsingar sem skipstjóri gaf Landhelgisgæslunni skömmu áður en Jökull ÞH299 sökk virðast ekki hafa verið réttar ef marka má myndskeið sem teki…
Myndskeið af skipverjum á Jökli ÞH, sem tekin voru eftir að sjór tók að flæða inn um lúgur aftast á skipinu, sýna hvernig allt er á floti í rýminu og veiðarfæri velkjast þar um skömmu áður en skipið sökk.
Heyra má skipverja kalla sín á milli og hrópar einn þeirra: „Hvað er í gangi?“ Virðast skipverjarnir furðu lostnir yfir ástandinu í rýminu.
Myndskeiðin benda meðal annars til þess að upplýsingar sem Landhelgisgæslunni bárust um tildrög slyssins hafi ekki verið að öllu leyti nákvæmar. Netalúgurnar eru lokaðar á Snapchat-myndskeiðinu sem birt er síðast í samsettu myndskeiði sem fylgir fréttinni.
Tókst að loka lúgunum
Á Snapchat-myndskeiðinu má sjá að léttur milliveggur hefur gefið sig undan sjógangi. Veggurinn stóð hins vegar óhaggaður á fyrri myndskeiðunum þar sem sjá má sjó flæða óhindrað inn um lúgurnar.
Frásögn skipverja sem staddur var í rýminu styður þá ályktun að tekist hafi að loka lúgunum, þó með þeim fyrirvara að veiðarfæri hafi legið á milli lúgu og karms á annarri þeirra þannig að hún lokaðist ekki þétt.
Kom á óvart hversu mikill sjór safnaðist fyrir
Skipið er 45 metra langt og segja fróðir menn að ekki sé óeðlilegt að talsverður sjór gangi inn í rýmið þar sem netin eru lögð. Skipverji segir í samtali við mbl.is að dælur hafi virkað framan af og því hafi komið á óvart hversu mikill sjór safnaðist fyrir í rýminu.
Rætt við skipverja í næstu viku
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að rannsókn slyssins gengi vel og að vonir stæðu til þess að hægt yrði að hefja viðtöl við skipverja í næstu viku.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗