„Þetta var ansi afgerandi“
„Þetta var ansi afgerandi,“ segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, um kosningu meðal félagsmanna þar sem þeir höfnuðu kjarasa…
„Þetta var ansi afgerandi,“ segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, um kosningu meðal félagsmanna þar sem þeir höfnuðu kjarasamningi við Icelandair.
Greint var frá því á föstudag að félagsmenn hefðu fellt nýundirritaðan samning en Óskar segir næstu skref ekki enn liggja fyrir.
„Við þurfum bara að hittast, samninganefndin, og fara yfir málin. Það er ekkert annað í stöðunni,“ segir hann. Ráðgert er að sá fundur verði í komandi viku.
Finnst þér líklegt að þið munið þurfa að leggjast í einhverjar aðgerðir til þess að ná vilja félagsmanna fram?
„Það er ekkert komið að slíku,“ segir Óskar. „Við eigum eftir að skoða málið og gera okkur grein fyrir því hvað það er sem félagsmenn eru aðallega að vonast eftir.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗