Mourinho kynnti frænda sinn til leiks á fréttamannafundi
Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, bauð upp á skemmtilegt augnablik á fréttamannafundi fyrir leik liðsins gegn Alaves í spænsku úrvalsdeildinni á morgun.
Þegar fréttamannafundinum var lokið stóð Mourinho upp úr sæti sínu og gekk í átt að blaðamönnunum áður en hann faðmaði einn þeirra.
Um var að ræða Pedro Mourinho, frænda portúgalska stjórans, sem starfar sem fréttamaður hjá CNN Portugal.
Mourinho kynnti frænda sinn fyrir blaðamönnunum en gat ekki annað en skotið létt á vinnuveitanda hans í leiðinni.
„Þessi maður hér er frændi minn og einn besti fréttamaður Portúgals. Hann er hins vegar farinn að starfa hjá fjölmiðlafyrirtæki sem kemur mjög illa fram við mig og því get ég ekki talað við hann,“ sagði Mourinho í léttum dúr.
Pedro hefur starfað hjá fjölmörgum fjölmiðlum í Portúgal á ferlinum en hann hóf nýverið störf hjá CNN Portugal.
Spænski miðillinn El Chiringuito birti myndband af samskiptum frændanna sem hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.
👀🇵🇹 MOURINHO PRESENTA a su PRIMO al acabar la RUEDA de PRENSA. 👉 "Es uno de los mejores periodistas en Portugal, pero su grupo me trata muy mal, así que no hablo con él". 📹 @marcosbenito9 https://t.co/aSDcqm2juc
— El Chiringuito TV (@elchiringuitotv) November 27, 2026
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗