Kröpp lægðin færir sig um set

Gul viðvörun er í gildi á Vestfjörðum fyrir hádegi.

Gera má ráð fyrir slyddu og éljum í dag.

Gera má ráð fyrir slyddu og éljum í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gera má ráð fyrir sunnan 13-20 m/s á norðanvestanverðu landinu í dag og rigningu eða slyddu, en hægari vindur annars staðar með éljum

Kröpp lægð sem gekk yfir í nótt er nú komin norðvestur af Vestfjörðum og verður áfram öflugur sunnanstrengur yfir Norðvesturlandi fyrir hádegi með rigningu eða slyddu, að segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Gul viðvörun er í gildi á Vestfjörðum fyrir hádegi.

Þessi lægð fjarlægist síðan og þá dregur úr vindi norðvestantil. 

Annars verður víða suðaustan gola eða kaldi með éljum eða slydduéljum, en lengst af úrkomulítið fyrir norðan. Hiti í kringum frostmark.

Búast má við hægri breytilegri átt á morgun og dálitlum skúrum eða éljum, en suðvestan strekkingur norðaustantil. Styttir upp sunnan jökla síðdegis. 

Frost 0 til 7 stig.

Veður á mbl.is

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读