Schumacher með grófar ásakanir
Ralf Schumacher, fyrrverandi ökumaður í Formúlu 1, sakaði Lewis Hamilton um að reyna að grafa undan Charles Leclerc, liðsfélaga sínum hjá Ferrar…
Ralf Schumacher, fyrrverandi ökumaður í Formúlu 1, sakaði Lewis Hamilton um að reyna að grafa undan Charles Leclerc, liðsfélaga sínum hjá Ferrari, eftir árekstur þeirra í kappakstrinum í Las Vegas um síðustu helgi.
„Hann vill ná stöðu fyrsta ökumanns með öllum tiltækum ráðum,“ sagði Schumacher í hlaðvarpinu Backstage Boxengasse á Sky í Þýskalandi. „Hann vill brjóta Leclerc niður andlega.“
Þótt dómarar keppninnar hafi talið Leclerc bera alla ábyrgð og dæmt hann í tíu sekúndna refsingu gaf Schumacher í skyn að Hamilton hefði vísvitandi ekki forðast áreksturinn.
Hamilton vísaði á bug fullyrðingum um að hann krefðist forgangs innan Ferrari. „Ég hef aldrei beðið um að vera fyrsti ökumaður. Ég hef í alvöru aldrei beðið um það,“ sagði hann við fréttamenn eftir keppnina.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/64/74/1647493.jpg)