Stjarnan slapp vel í flugeldaslysi

Lando Norris fagnar sigrinum.

Lando Norris fagnar sigrinum. AFP/Mauro Pimentel

Lando Norris, heimsmeistari í Formúlu 1 árið 2025, slapp ómeiddur eftir að neisti frá flugeldasýningunni á verðlaunapallinum lenti í andliti hans þegar hann fagnaði sigri sínum í brasilíska kappakstrinum í gær.

McLaren-ökuþórinn hafði nýlega mölbrotið kampavínsflöskuna sína þegar hann reyndi hefðbundin fagnaðarlæti sín, þar sem hann slær henni í gólfið til að láta kampavínið sprautast.

Norris virtist síðan ganga beint inn í flugeldana og huldi strax andlitið eftir að hafa orðið fyrir neistanum.

„Mér skilst að hann sé í lagi,“ sagði Andrea Stella, liðsstjóri McLaren, við Sky.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅