Á tíræðisaldri með haglabyssu í flug
Bernie Ecclestone, fyrrverandi alráður Formúlu 1, var handtekinn af portúgölsku lögreglunni í gær á leið sinni inn í landið.
Ástæðan er sú að hann flaug með haglabyssu í einkaþotu sinni frá Gstaad í Sviss. Var honum sleppt eftir yfirheyrslu.
Samkvæmt Eccleston, sem er 95 ára, ætlaði hann að gefa vini sínum byssuna, sem er ætluð til dúfnaveiða.
Hann hefur áður verið handtekinn fyrir að ferðast ólöglega með skotvopn er hann flaug á einkaþotu sinni til Brasilíu fyrir nokkrum árum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗