Fólk hefur komið hingað og horfið
„Auðvitað sjá Íslendingarnir að þessir hópar eru með tengslin, tengslin úti til að skaffa hvað það er sem vantar, hvort sem það eru fíkniefni eð…
Finnbogi Jónasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglustjóra, fer yfir stöðu íslenskra undirheima með Morgunblaðinu og ræðir um heim sem sjaldnast er almenningi sýnilegur nema þegar málin komast á síður fjölmiðla. mbl.is/Árni Sæberg
„Ég held að þarna komi dálítið upp þessi íslenski hugsunarháttur að vinna bara með hverjum sem er, láta hlutina ganga upp eins og við sjáum stundum í þessu,“ segir Finnbogi Jónasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglustjóra, í samtali við Morgunblaðið í þessum fyrsta kafla af nokkrum hér í blaðinu og á mbl.is um gang mála í íslenskum undirheimum, þróun þar, breytingar og nýjar ógnir.
Svarar hann þarna spurningu um tengsl og samstarf innlendra og erlendra brotahópa sem nú eru um 20 starfandi á landinu miðað við upplýsingar frá hans eigin deild sem rýnir í íslenska og erlenda undirheima og skipulagða glæpastarfsemi í víðtæku alþjóðlegu samstarfi fjölda löggæsluembætta og -stofnana.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗