Haukar úr leik í Evrópubikarnum

Haukar eru úr leik í Evrópubikar karla í handbolta eftir 33:29-tap í 32-liða úrslitum gegn sterku liði Rd Slovenj Grandec á útivelli í dag.

Freyr Aronsson var markahæstur með sjö mörk.

Freyr Aronsson var markahæstur með sjö mörk. mbl.is/Anton Brink

Haukar eru úr leik í Evrópubikar karla í handbolta eftir 33:29-tap í 32-liða úrslitum gegn sterku liði Rd Slovenj Grandec á útivelli í dag. 

Fyrri leikur liðanna endaði með sigri Hauka, 28:27, en samanlagður sigurvegari fer áfram í 16-liða úrslit.

Staðan var 16:15 fyrir Haukum í hálfleik en Haukar komust mest fjórum mörkum yfir í fyrri hálfleik, 9:5, 14:10, 15:11 og 12:16. Haukar misstu forystuna niður í eitt mark þegar Rd Slovenj Grandec tók 3:0 kafla undir lok fyrri hálfleiks.

Slóvakar komust yfir á 36. mínútu og Haukar náðu forystunni ekki til baka eftir það.

Lokatölur voru 33:29 fyrir heimamönnum sem fara áfram í 16-liða úrslit.

Freyr Aronsson var markahæstur hjá Haukum með 7 mörk og þar á eftir voru Sigurður Jefferson Guarino 6 ogAndri Fannar Elísson með 6 mörk. Össur Haraldsson 4, Birkir Snær Steinsson 3, Skarphéðinn Ívar Einarsson 3.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「mbl.is - Íþróttafréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读