Fjórði sigur FH-inga í röð
FH vann fimm marka sigur á Stjörnunni, 30:25, í 12. umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í Garðabænum í dag.
FH-ingar eru með 19 stig í öðru sæti en liðið hefur unnið síðustu fjóra leiki sína. Stjarnan er í níunda sæti með átta.
FH-ingar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 17:15, og juku forskot sitt í þeim seinni.
Hinn ungi Brynjar Narfi Arndal skoraði sjö mörk fyrir FH og Jón Þórarinn Þorsteinsson varði 15 skot. Jóel Bernburg skoraði fimm fyrir Stjörnuna og Sigurður Dan Óskarsson fór þá mikinn í marki Stjörnunnar og varði 18 skot.
Mörk Stjörnunnar: Jóel Bernburg 5, Gauti Gunnarsson 4, Dagur Sverrir Kristjánsson 4, Tandri Már Konráðsson 3, Gísli Rúnar Jóhannsson 3, Hrannar Bragi Eyjólfsson 2, Daníel Karl Gunnarsson 2, Tóki Friðriksson 1, Sigurður Dan Óskarsson 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 18 (41%).
Mörk FH: Brynjar Narfi Arndal 7, Ómar Darri Sigurgeirsson 5, Ágúst Guðmundsson 5, Ingvar Dagur Gunnarsson 3, Gunnar Kári Bragason 3, Einar Örn Sindrason 3, Eiður Rafn Valsson 1, Símon Michael Guðjónsson 1, Einar Rafn Eiðsson 1, Guðmundur Levy Hreiðarsson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 15 (38%).
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗