Vill fá verklag Landspítalans upp á borðið
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, kallar eftir gagnsæi um verklag Landspítalans.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, kallar eftir gagnsæi um verklag Landspítalans við meðferð máls Tómasar Guðbjartssonar. Runólfur Pálsson, forstjóri spítalans, hefur boðað endurskoðun verkferla. Samsett mynd: mbl.is/Eggert/Kristinn Ingvarsson/Sigurður Bogi
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, vill að Landspítalinn upplýsi hvort unnið hafi verið eftir fyrir fram skilgreindu verklagi við meðferð máls Tómasar Guðbjartssonar hjartaskurðlæknis og að það verði lagt fram til að tryggja gagnsæi.
Hafi slíkt verklag ekki verið fyrir hendi þurfi að hennar mati að skoða þær ákvarðanir sem voru teknar og hver beri ábyrgð á þeim.
Í samtali við Morgunblaðið í vikunni kvaðst Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, almennt ánægður með viðkomandi stjórnendur og sagðist ekki sjá ástæðu til að grípa til aðgerða gagnvart þeim. Áherslan yrði fremur lögð á að bæta vinnubrögð í málum af þessu tagi.
Runólfur kvaðst bera ábyrgð á verkferlum og stjórnunarháttum spítalans og sagði að taka þyrfti þá ferla sem um ræddi til rækilegrar endurskoðunar.
Vill tryggja gagnsæi
Steinunn segist í samtali við mbl.is í vikunni vilja fá að vita hvort unnið hafi verið eftir fyrir fram skilgreindu verklagi við meðferð máls Tómasar.
Hún tekur fram að hún eigi þar ekki við reglur spítalans um myndatökur og myndbirtingar heldur verklag við meðferð starfsmannamála.
Hún nefnir sem dæmi þá ákvörðun að afþakka vinnuframlag Tómasar í desember 2024 og spyr hvort til séu reglur um við hvaða aðstæður stjórnendum sé ætlað að grípa til slíkra ráðstafana.
„Mér fyndist mjög mikilvægt að Landspítali leggi þetta verklag fram til að tryggja gagnsæi,“ segir Steinunn.
Umboðsmaður Alþingis telur ákvörðun um að veita Tómasi Guðbjartssyni áminningu ekki hafa verið í samræmi við lög. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Fjöldi annmarka á málsmeðferðinni
Í áliti umboðsmanns Alþingis, sem dagsett er 18. nóvember, er komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Landspítalans um að veita Tómasi áminningu 24. janúar 2025 hafi ekki verið í samræmi við lög. Þá hafi spítalinn brotið gegn óskráðri meginreglu um meðalhóf með því að afþakka vinnuframlag hans svo lengi sem raun bar vitni.
Áminningin laut annars vegar að birtingu myndar á Facebook sem tekin var við skurðaðgerð og hins vegar að myndatöku hans af sjúklingi á hjartaþræðingarstofu.
Samkvæmt áliti umboðsmanns var engar persónugreinanlegar upplýsingar um sjúklinga eða aðstandendur að finna á myndinni sem birt var á Facebook.
Umboðsmaður bendir jafnframt á að Landspítalinn hafi sjálfur átt frumkvæði að birtingu sambærilegra mynda opinberlega. Þá sé starfsfólk samkvæmt reglum spítalans hvatt til að nýta samfélagsmiðla til að veita innsýn í störf sín.
Tómas hélt því fram að myndatakan á hjartaþræðingarstofunni hefði verið nauðsynleg vegna meðferðar sjúklingsins. Að mati umboðsmanns lagði spítalinn ekki fullnægjandi mat á nauðsyn myndatökunnar.
Þá telur umboðsmaður að brotið hafi verið gegn andmælarétti Tómasar þar sem honum var ekki gefinn kostur á að tjá sig um tilteknar upplýsingar sem höfðu þýðingu við ákvörðun um áminninguna.
Traust starfsfólks
Spurður í vikunni hvort þörf væri á að endurheimta traust starfsfólks í kjölfar málsins sagðist Runólfur telja að starfsfólk bæri almennt traust til stjórnenda spítalans. Mál af þessu tagi gætu þó vakið vantraust hjá einhverjum og yrði leitast við að bæta úr því.
Steinunn ítrekar mikilvægi þess að fullvissa annað starfsfólk Landspítalans um að bætt verði úr þeim annmörkum á vinnubrögðum sem umboðsmaður hefur bent á.
Á ekki kost á öðrum vinnustað
Steinunn segir málið jafnframt hafa þá sérstöðu að Tómas eigi ekki kost á því að starfa annars staðar hér á landi sem hjartaskurðlæknir.
Afleiðingar þess að meina honum að sinna starfi sínu geti því verið mun afdrifaríkari en í mörgum öðrum starfsmannamálum. Standi honum ekki til boða að starfa við sérgrein sína hér á landi þurfi hann að leita sér starfa erlendis eða hverfa úr sérgreininni.
Sérstaklega ríkar ástæður þurfi að liggja að baki ákvörðun sem geti haft slíkar afleiðingar.
Funda á mánudag
Stjórnendur Landspítalans munu funda með Tómasi og fulltrúum Læknafélagsins á mánudag. Þetta staðfestir Steinunn í samtali við mbl.is í dag.
Steinunn sagði í vikunni mikilvægt að stjórnendur spítalans fengju svigrúm til að fara yfir álit umboðsmanns og bregðast við því.
Runólfur kvaðst í samtali við Morgunblaðið í vikunni telja líklegt að áminning Tómasar yrði dregin til baka og að tilefni væri til að biðja hann afsökunar.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
