Ekki á hverjum degi sem lægð hagar sér svona

Snjókoma, rigning og stormur á örfáum klukkustundum.

Vindaspá Veðurstofu Íslands um kvöldmatarleytið í kvöld. Vel sést hvernig vindstrengurinn liggur þvert yfir mitt landið. Skjáskot/vedur.is

Kröpp lægð nálgast landið og er útlit fyrir nokkuð óvenjulega atburðarás í kvöld og nótt. Afmarkaður veðurstrengur sem gengur inn á Suðausturland í kvöld færist þvert yfir mitt landið og norður á bóginn.

Útlit er fyrir að veðrið verði verst á Norðurlandi seint í kvöld og í byrjun nætur, einkum á Tröllaskaga og í Skagafirði.

Þetta segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands í samtali við mbl.is en gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út vegna hvassviðris og hríðar.

Nokkur úrkoma er á suðvesturhluta landsins og þegar er farið að snjóa á Hellisheiði. Einnig gæti snjóað í Reykjavík síðdegis áður en hlýnar og úrkoman breytist í rigningu.

Óvenjuleg atburðarás

Þegar lægðin gengur yfir landið í kvöld tekur fyrst að hvessa á Suðausturlandi þar sem útlit er fyrir sunnanstorm í tvær til þrjár klukkustundir.

Veðurstrengurinn færist síðan norður á bóginn og versnar veðrið hratt á Norðurlandi þegar líður á kvöldið. Þar ætti þó einnig að draga nokkuð hratt úr vindi í nótt.

Þegar veðrið skánar fyrir norðan tekur að hvessa á Vestfjörðum, seint í nótt eða undir morgun.

Veðurfræðingurinn segir atburðarásina nokkuð flókna. Ekki sé á hverjum degi sem svo kröpp lægð gengur yfir landið og úrkoman breytist úr snjókomu í rigningu og aftur í snjókomu á örfáum klukkustundum.

Þá sé einnig óvenjulegt að svo afmarkaður veðurstrengur færist frá Suðausturlandi þvert yfir mitt landið og til Norðurlands.

Skammvinnt hríðarveður á Hellisheiði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur hvatt ferðalanga til að fara varlega vegna snjókomu og erfiðra akstursskilyrða á Hellisheiði og í Þrengslum.

Að sögn veðurfræðingsins má einnig búast við skammvinnu hríðarveðri á Hellisheiði þegar líður á kvöldið og gæti þar orðið hvasst með snjókomu í um tvær klukkustundir.

Á morgun ætti veðrið að verða mun skaplegra um allt land en jafnframt kólnar á ný.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Helstu fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读