Gervigreind spái fyrir um hálku
Áætlaður kostnaður við vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar á árinu 2026 er 1.258 milljónir króna.
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni kom fram í bókun meirihlutans að kanna þyrfti hvernig nýta mætti gervigreind til að spá fyrir um hálku og meta hvenær og hvar þörf væri á útkalli. Hefðbundið útkall vegna snjómoksturs kostar um 8,4 milljónir króna á dag en útkall við 10-20 cm snjókomu um 26 milljónir.
„Vetrarþjónusta krefst árvekni. Færð getur breyst hratt og aðstæður verið ólíkar eftir hverfum. Því skiptir máli að fylgjast vel með hálkumyndun og bregðast tímanlega við svo börn komist örugg í skólann, strætóleiðir haldist greiðfærar og aðgengi að sjúkrahúsum sé tryggt. Við snjómokstur þarf sérstaklega að gæta þess að snjóruðningar loki ekki göngu- og hjólaleiðum þar sem þeir þvera götur.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗