Aðventan með börnunum er besti tími ársins
Hefur þú gert samverudagatal fyrir börnin þín?
Dóróthea og maðurinn hennar Ari Bragi ætla að prófa að vera í Kaupmannahöfn um jólin með börnum sínum tveimur.
Dóróthea Jóhannesdóttir, markaðsstjóri Kids World á íslenskum markaði, býr í Kaupmannahöfn með eiginmanni sínum og börnunum sínum tveimur. Dóróthea er mikið jólabarn og nýtur þess að eiga huggulegar stundir með fjölskyldunni á aðventunni. Hún segir auðvelt að gera sér dagamun þegar líður að jólum.
„Ég er algjört jólabarn og er komin í jólaskap strax í byrjun nóvember. Ég elska þennan árstíma og finnst eiginlega ekkert skemmtilegra en að fá að lengja jólatímabilið eins mikið og hægt er. Ég byrja yfirleitt rólega, set á létt jólalög, tek fram eitt og eitt jólaskraut, baka fyrstu sortina af jólasmákökum og horfi á einhverjar notalegar jólamyndir. Svo færist þetta allt smám saman í aukana eftir því sem líður á nóvember, þar til allt heimilið er orðið jólaskreytt, smákökuboxin full og uppáhaldsjólalögin og jólamyndirnar fá að rúlla. Mér finnst líka stór hluti af jólastemningunni felast í öllu litlu augnablikunum í aðdraganda jólanna. Að kveikja á kertum, hafa það notalegt heima, baka með börnunum og finna hvað þau verða spenntari með hverjum deginum,“ segir Dóróthea.
Hún segist alltaf hafa verið svona mikið jólabarn og þakkar foreldrum sínum fyrir að skapa einstaka stemmningu um jólin og í aðdraganda þeirra. Að hennar sögn urðu jólin bara dásamlegri eftir að hún sjálf varð móðir.
„Ég fékk loksins tækifæri til að reyna að gera það sama fyrir börnin mín og mamma og pabbi gerðu fyrir okkur systkinin þegar við vorum lítil. Að fá að vera sjálf manneskjan á bak við jólatöfrana á mínu eigin heimili er eitthvað svo dýrmætt. Ég hef eiginlega fengið að upplifa jólin aftur í gegnum augu barnanna minna og það er alveg einstök tilfinning. Mér finnst líka yndislegt að við fáum núna að móta okkar eigin jól sem fjölskylda. Við höfum tekið með okkur uppáhaldshefðirnar úr minni æsku, blandað þeim saman við hefðirnar sem maðurinn minn ólst upp við og svo erum við smám saman að búa til alveg nýjar hefðir sem eru bara okkar.“
Samverudagatalið er sveigjanlegt
Dórótheu finnst aðventan með börnunum vera einn allra besti tími ársins.
„Það er alltaf eitthvað skemmtilegt fram undan, eitthvað sem hægt er að föndra, baka, skreyta eða brasa saman. Við reynum samt að vera svolítið í flæðinu og ekki skipuleggja hvern einasta dag, heldur sjá bara hvert dagurinn leiðir okkur. Stundum endum við á því að eyða heilum degi heima í náttfötunum, baka smákökur og horfa á jólamyndir, á meðan aðra daga förum við út að rölta um jólamarkaði, skoða jólaljósin eða fá okkur eitthvað gott á kaffihúsi. Kaupmannahöfn er líka alveg einstaklega falleg á þessum árstíma og það er svo margt skemmtilegt hægt að gera með börnunum. Mér finnst það besta við aðventuna vera að það þarf svo lítið til að gera dagana sérstaka. Ég reyni að passa að við séum ekki alltaf á einhverjum þeytingi að gera allt mögulegt, heldur gefum okkur líka tíma til að njóta þess að vera bara saman. Oft eru það einmitt þessar einföldu, óskipulögðu stundir sem verða að bestu minningunum.“
Eruð þið með samverudagatal eða gerið þið eitthvað markvisst saman á aðventunni?
„Já, síðustu ár hef ég alltaf útbúið samverudagatal fyrir okkur í desember sem við hengjum upp á vegg og fylgjumst með saman. Mér finnst það gera aðventuna enn skemmtilegri og börnin verða extra spennt að sjá hvað er á dagskrá hverju sinni. Jafnvel eitthvað jafn einfalt og að horfa saman á jólamynd verður allt í einu að miklu meira spennandi viðburði þegar það stendur á samverudagatalinu. Á dagatalinu eru alls konar samverustundir, bæði litlir og einfaldir hlutir sem hægt er að gera heima eftir leikskóla og skóla, en líka stærri viðburðir sem krefjast aðeins meiri tíma og skipulagningar. En þótt ég elski að skipuleggja svona hluti vil ég alls ekki að aðventan verði einn stór verkefnalisti. Ég passa mig að hafa ekki samverustundirnar fastar við ákveðnar dagsetningar og hef dagatalið því frekar sveigjanlegt til að geta valið hvað við gerum eftir því hvað hentar hverju sinni. Stundum er orkan mikil og allir til í ævintýri en aðra daga er það besta sem við gerum að kúra saman heima í sófanum. Dagatalið er því fyrst og fremst hugsað sem skemmtilegur innblástur og leið til að minna okkur á að gefa okkur tíma fyrir litlu samverustundirnar í öllu desemberannríkinu.“
Ási álfur og íslenskir jólasveinar
Koma líka álfar og jólasveinar ofan á allt þetta heim til ykkar?
„Já, heldur betur. Ási álfur, eins og hann er kallaður á okkar heimili, mætir til okkar 1. desember og er hjá okkur þangað til fyrsti jólasveinninn kemur til byggða aðfaranótt 12. desember. Ási gerir alls konar prakkarastrik á meðan hann er hjá okkur en hans hlutverk er líka að aðstoða jólasveinana við að fylgjast með því hvort allir séu ekki stilltir og prúðir. Svo hefur jólasveinamálið verið svolítið skemmtileg áskorun hér í Danmörku, þar sem Danir eru bara með einn jólasvein en við Íslendingar þrettán. En íslensku jólasveinarnir koma auðvitað allir heim til okkar og mér finnst ótrúlega mikilvægt að halda í þá hefð, sérstaklega þar sem við búum erlendis. Mig langar að börnin mín alist upp við íslensku jólasveinana og allar þessar skemmtilegu sögur og hefðir sem fylgja þeim. Við eigum sérstaka bók um íslensku jólasveinana sem dóttir mín elskar að lesa. Þar er meðal annars sagt frá hverjum jólasveini fyrir sig, hvernig hann hagar sér og hvað honum þykir gott að borða. Við reynum því alltaf að undirbúa eitthvað gott fyrir jólasveininn sem er væntanlegur hverju sinni og setjum út í glugga kvöldið áður. Okkur finnst nú ekki annað hægt en að taka vel á móti þeim eftir þetta langa ferðalag alla leið frá Íslandi til Danmerkur.“
Sumum finnst þetta prógramm ofan á allt annað stressandi. Hvernig upplifir þú það?
„Já, og ég get svo sannarlega skilið það. Þetta getur auðvitað orðið mikið og yfirþyrmandi, sérstaklega þegar maður er með lítil börn, í vinnu og með allt annað sem fylgir hversdagsleikanum. En ég reyni að horfa á þetta fyrst og fremst sem gleði og gaman, því mér finnst þetta sjálfri svo ótrúlega skemmtilegt. Ég geri bara það sem ég hef tíma og orku fyrir hverju sinni og passa að setja ekki óþarfa pressu á mig að gera allt. Ég held að lykillinn sé að finna sitt eigið jafnvægi og muna að þetta á að vera skemmtilegt, ekki enn eitt verkefnið sem þarf að klára. Ef eitthvað sem á að skapa gleði og notalegar samverustundir er farið að valda stressi og leiðindum, þá er tilgangurinn svolítið farinn út um þúfur. Það er alveg í lagi að sleppa einhverju, breyta plönum eða gera hlutina einfaldari en maður ætlaði sér. Ég held líka að börnin séu ekkert endilega að gera sömu kröfur og við fullorðna fólkið gerum stundum til okkar sjálfra. Þau þurfa ekki fullkomin jól eða einhver stórkostleg ævintýri á hverjum degi. Oft eru það einföldustu hlutirnir sem gleðja þau mest.“
Ætla að halda sín eigin jól í fyrsta sinn
Að skreyta fyrir jólin er hluti af því sem kemur Dórótheu í jólaskap.
„Ég elska klassíska og hlýlega jólastemningu, sérstaklega greni og rauðar jólaskreytingar. Ég reyni að koma greni fyrir sem víðast á heimilinu og skreyti svo mikið með rauðu jólaskrauti í bland við annað skraut sem ég á. Ég nota líka mikið rauð kerti hér og þar, mér finnst það skapa ótrúlega notalega stemningu. Svo þykir mér líka ótrúlega vænt um jólaskraut sem á sér einhverja sögu. Ég á enn heilmikið af skrauti frá því ég var lítil stelpa, sem ég notaði til að skreyta mitt eigið herbergi fyrir jólin. Mest af því hefur dóttir mín nú fengið og hún notar það til að skreyta sitt herbergi, sem mér finnst mjög dýrmætt. Ég hef líka verið dugleg í gegnum árin að safna að mér einum og einum fallegum hlut sem mér þykir sérstaklega vænt um, frekar en að skipta öllu út á milli ára. Eitt af því jólaskrauti sem er í hvað mestu uppáhaldi hjá okkur er til dæmis gamall hnotubrjótur sem kemur frá ömmu mannsins míns. Mér finnst svo fallegt að eiga svona hluti sem hafa gengið á milli kynslóða og fá að gefa þeim áframhaldandi hlutverk í jólunum okkar.“
Hvernig verða jólin í ár?
„Við ætlum í fyrsta skipti að prófa að vera heima hjá okkur í Kaupmannahöfn um jólin í ár. Ég hef alltaf verið í foreldrahúsum um jólin og maðurinn minn hefur fylgt mér í því, þannig að það verður svolítið skrýtið að vera ekki hjá mömmu og pabba á aðfangadagskvöld. Ég er svo mikil hefðamanneskja þegar kemur að jólunum og hef alltaf elskað að koma heim í jólastemninguna hjá þeim, þannig að ég veit að ég á eftir að sakna þess. En á sama tíma er ég líka ótrúlega spennt fyrir því að prófa að halda okkar eigin jól hér heima í fyrsta skipti. Að fá að skapa okkar eigin jólastemningu, móta nýjar hefðir, elda jólamatinn sjálf í fyrsta skipti og upplifa aðfangadagskvöld bara við fjögur á okkar eigin heimili,“ segir Dóróthea.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗







