Unglingurinn er gjarnan kröfuharður og erfiður þegar kemur að gjöfum. Eða hvað? Sennilega þarf að hafa það á hreinu hvað er í tísku á þessum aldri og hugsa út í áhugasviðið. Praktísk tæki eins og heyrnartól og hátalarar nýtast alltaf vel eða fatnaður eins og úlpa, húfa og vettlingar.
Þetta er tímafrekt en þess virði þegar þú hittir í mark.
Saumavél frá Brother sem hentar mjög vel fyrir þá sem eru að byrja að sauma. Vélin er auðveld í notkun og býður upp á 16 algengustu saumsporin. Fæst í Pfaff og kostar 79.900 kr.
Skíði frá Völkl. Fást í Fjallakofanum og kosta 84.995 kr.
Joggingbuxur sem unglingurinn mun elska. Þær eru frá Kenzen og kosta 14.990 kr.
AirPods 5 hitta alltaf í mark. Fást í Epli og kosta 24.990 kr.
Karókí-hátalari frá Ikarao er fullkominn félagi fyrir þá sem elska að syngja og skemmta sér. Fæst í Elko og kostar 54.995 kr.
Íþrótta- eða helgartaska frá 66° Norður. Nýtist einstaklega vel og fæst í nokkrum litum. Kostar 19.900 kr.
Fallegur loðkragi úr lambaskinni, fæst í Feldi og kostar 15.900 kr.
Samba-strigaskór frá Adidas. Fást í Evu/GK Reykjavík og kosta 29.995 kr.
Gallabuxur með reimum frá Ginu Tricot og kosta 7.895 kr.
Hettupeysa frá Aftur sem kostar 74.700 kr.
Eyrnalokkar með steinum frá Myletra sem
kosta 2.990 kr.
Öld ímyndunaraflsins eftir Berg Ebba, fæst í Eymundsson og kostar 5.499 kr.
Léttir, praktískir og fjölnota gönguskór frá Scarpa. Fást í Fjallakofanum og kosta 37.995 kr.
Ljós dúnúlpa frá Polo Ralph Lauren, fæst í Herragarðinum og kostar 79.980 kr.
Burstasett frá Hörpu Kára, fæst í Hagkaup og kostar 14.999 kr.
Brúnkukrem frá Azure Tan, fæst í Hagkaup og kostar 3.999 kr.
Inniskór frá Birkenstock, fást í Kaupfélaginu og kosta 26.995 kr.
Owala-brúsi, fæst í Akkúrat og kostar 5.900 kr.
Fujifilm-myndavél sem fæst í Elko og kostar 17.995 kr.
Krullujárn frá HH Simonsen, fæst hjá Beautybar og kostar 70.710 kr.
Real Madrid-fótboltatreyja frá Adidas, fæst í Jóa útherja og kostar 23.990 kr.
Flowerpot-lampi frá &Tradition, fæst í Epal og kostar 69.500 kr.