Þetta er án efa erfiðasta týpan sem hægt er að gefa gjöf. Það sem fagurkerann langar í kaupir hann sér og ef hann er ekki búinn að fjárfesta í hlutnum þá er það vegna þess að fáir hafa efni á honum.
Þetta er ekki gjöfin sem þú vilt eiga eftir á Þorláksmessu, heldur þarftu að gefa þér tíma. Það er þó auðvelt að gleðja fagurkerann en aðeins ef þú leitar á réttum stöðum.
Hliðarborð frá Arco, hannað af Marcine Sabelis. Fæst í Vest og kostar 378.000 kr.
Skurðarbretti frá Ferm Living, fæst í Epal og kostar 19.900 kr.
Bók um Sigvalda Thordarson arkitekt eftir Albínu Thordarson og Pétur H. Ármannsson. Fæst í Eymundsson og kostar 15.999 kr.
Snoopy-lampinn frá Flos er klassísk hönnunarvara. Fæst í Lumex og kostar 195.000 kr.
Skálar skreyttar Swarovski-kristöllum frá Sophie Lou Jacobsen. Svona slærðu í gegn. Þær fást í Officinu og koma þrjár saman og kosta 13.900 kr.
Sloppur frá Teklu, fæst í Officinu og kostar 34.900 kr.
Ullarteppi frá As We Grow sem kostar 35.900 kr.
Ljósmynd eftir Hólmfríði Sunnu Guðmundsdóttur, fæst í Listvali og kostar 450.000 kr.
Pels frá Utzon, fæst í Mathildu og kostar 179.990 kr.
Navitimer-úr frá Breitling, fæst í Michelsen og kostar 730.000 kr.
Santal 33 handsápa frá Le Labo, fæst í Mikado og kostar 9.390 kr.
Togo-stóllinn frá Ligne Roset er æðislegur, klassískur hægindastóll. Fæst hjá Calmo og kostar 552.923 kr.
Pottur frá Le Creuset, fæst í Lífi & list og kostar 56.990 kr.
16 stykkja hnífaparasett frá Georg Jenssen. Fæst í Kúnígúnd og kostar 49.995 kr.
Ilmkerti frá Skandinavisk, Skog, með greniilmi. Fæst í Epal og kostar 6.500 kr.
Jólastjarna frá Watt & Veke, fæst í Dimm og kostar 9.990 kr.
Rúmteppi frá Appreciate The Details, fæst í Tekki og kostar 58.000 kr.
Ilmstrá Maison Louise Marie, fást í Andrá og kosta 18.990 kr.
Brúsi frá Northél úr stáli og korki, fæst hjá Samfjelaginu og kostar 6.800 kr.
Saltkvörn frá Peugeot, fæst í Kokku. 22 cm kvörn kostar 8.900 kr.
Brúnar joggingbuxur frá Lacoste, fást
í Herragarðinum og kosta 24.980 kr.
Fagurkeri og gusumeistari? Þá er þessi hattur fullkominn. Hann er frá Saunagut, fæst í Samfjelaginu og kostar 9.800 kr.
Georg Jensen kanna, fæst í Epal og kostar 31.500 kr.