Gular viðvaranir vegna hvassviðris og hríðar
Þegar líður á kvöldið færist lægðarmiðjan yfir landið vestanvert og snýst þá í suðlægari átt austantil og í kvöld má búast við sunnanhríð á norð…
Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s eftir hádegi með rigningu, slyddu eða snjókomu, en úrkomuminna norðantil. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Lægð nálgast nú landið úr suðri og eftir því sem hún nálgast byrjar að hvessa suðaustanlands með rigningu eða slyddu.
Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s eftir hádegi með rigningu, slyddu eða snjókomu, en úrkomuminna norðantil.
Gefnar hafa verið úr gular viðvaranir vegna hvassviðris og hríðar.
Síðdegis er útlit fyrir að lægðarmiðjan verði við suðurströndina og orðið hvasst sunnan og austantil og víða rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla, að fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.
Þegar líður á kvöldið færist lægðarmiðjan yfir landið vestanvert og snýst þá í suðlægari átt austantil og í kvöld má búast við sunnanhríð á norðanverðu landinu, hvassast á Tröllaskaga.
Lægðin fjarlægist svo til norðvesturs í nótt og þá dregur úr vindi og skúrir eða slydduél myndast á eftir henni. Búast má því við fremur hægri suðaustlægri átt á morgun með skúrum eða slydduéljum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗