Getur bankayfirlit sagt eitthvað ástarlíf fólks?

Eymundur Sveinn Einarsson endurskoðandi svarar áríðandi spurningum frá lesendum!

Eymundur Sveinn Einarsson endurskoðandi hjá Endurskoðun & ráðgjöf svarar spurningum lesenda Smartlands.

Eymundur Sveinn Einarsson endurskoðandi hjá Endurskoðun & ráðgjöf svarar spurningum Smartlandslesenda. Hér fær hann spurningu frá manni sem veltir því fyrir sér hvort bankayfirlit segi eitthvað til um ástarlíf fólks. 

Heill og sæll Eymundur. 

Þú hefur eflaust séð ýmislegt í bókhaldi fólks í gegnum tíðina, en hvað heldurðu að bankayfirlit fólks segi um ástarlíf þess? Er hægt að sjá á Visa-reikningnum hvort hjónaband sé að fara í vaskinn?“

Kveðja,

Jón.

Sæll Jón.

Jú, kannski ef ímyndunaraflið fær að ráða för, en það er nú einmitt veikasta hlið okkar endurskoðenda. Við sjáum tölur, ekki tilfinningar. Ég held að þessi spurning eigi betur heima í dálkinum „spurðu sálfræðinginn“.

Ef þú hefur raunverulegar áhyggjur væri nær að leita aðstoðar hjá fagfólki en að rýna í greiðslukortayfirlit hvors annars.

Kveðja,

Eymundur Sveinn Einarsson, endurskoðandi. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Eymundi spurningu HÉR. 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Smartland」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读