Greta Salóme og Elvar eignuðust dóttur

Greta Salóme Stefánsdóttir og Elvar Karlsson eiga nú þrjú börn.

Greta Salóme Stefánsdóttir og Elvar Karlsson eiga nú þrjú börn. mbl.is/Thelma Arngrímsdóttir

Tónlistarkonan Greta Salóme Stefánsdóttir og eiginmaður hennar Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, eignuðust sitt þriðja barn þann 26. nóvember. 

Greta Salóme greindi frá því í sögu á Instagram að dóttir þeirra væri mætt í heiminn. „Hún er mætt,“ skrifaði Greta Salóme og birti mynd af sér halda í hönd dóttur sinnar. Greindi hún jafnframt frá því að stúlkan hefði komið í heiminn 26. nóvember. 

Þrjú börn á nokkrum árum

Hjónin eiga synina Bjart Elí sem er fæddur 2022 og Sólmund, sem er fæddur 2024. Greta og Elvar gengu í hjónaband 2023. Í viðtali við Smartland skömmu eftir brúðkaupið sagði hún að brúðkaupsdagurinn hefði verið fullkominn. 

Smartland óskar fjölskyldunni til hamingju með barnalánið. 

Greta Salóme birti mynd af nýfæddri dóttur sinni á Instagram.

Greta Salóme birti mynd af nýfæddri dóttur sinni á Instagram. Skjáskot/Instagram

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab