Fjölskylda Axels Björns og Selmu Soffíu stækkar

Litli Elvis!

Axel Björn og Selma Soffía eru ástfangin og eru búin að fá sér hund. Skjáskot/Instagram

Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Selma Soffía Guðbrandsdóttir og matreiðslumaðurinn og eigandi Umami Sushi, Axel Björn Clausen, tóku stórt skref í sambandinu og fengu sér hvolp. Hvolpurinn er af dalmatíukyni. Parið greinir frá þessu með krúttlegu myndskeiði á samfélagsmiðlum.

„Fjölskyldan stækkar. Við kynnum til leiks litla Elvis,“ skrifar hún á Instagram.

Dalmatíuhundar eru glæsilegir og kraftmiklir hundar sem vekja athygli hvert sem þeir fara fyrir einkennandi svarta eða brúna bletti á hvítum feldinum. Þeir eru greindir, fjörugir, tryggir og yfirleitt mjög félagslyndir. Það verður nóg að gera hjá Selmu Soffíu og Axel Birni því dalmatíuhundar þurfa mikla hreyfingu, andlega örvun og gott uppeldi. Þeir geta verið einstaklega góðir fjölskylduhundar og henta sérstaklega vel fólki með virkan lífsstíl.

Það hefur verið nóg um að vera í sambandi Selmu Soffíu og Axels Björns því fyrr í haust trúlofuðu þau sig í háloftunum á leið til Barcelona.

„Það má segja að flugið til Barcelona í gær hafi verið extra sérstakt. Þetta var auðveldasta já lífs míns og ég get ekki beðið eftir öllu lífinu með þér við hlið, enda bókstaflega draumamaðurinn sem ég „manifestaði“ hihi,“ skrifaði hún á samfélagsmiðla eftir bónorðið.

Smartland óskar parinu innilega til hamingju með nýjustu viðbótina! 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab