Rekinn frá Þór
Stjórn handknattleiksdeildar Þórs og Daniel Birkelund hafa komist að samkomulagi um að hann stígi til hliðar sem þjálfari meistaraflokks karla.
Stjórn handknattleiksdeildar Þórs og Daniel Birkelund hafa komist að samkomulagi um að hann stígi til hliðar sem þjálfari meistaraflokks karla.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarliðinu í kvöld.
Þór er í tíunda sæti úrvalsdeildar karla með sex stig eftir tólf leiki. Liðið hefur unnið þrjá leiki en tapað níu.
„Daniel kom til félagsins 1. júlí 2025 og stýrði liðinu í 9. sæti og hélt sæti okkar í deildinni á síðasta tímabili. Á þeim tíma hefur hann lagt mikla vinnu, metnað og hjarta í starfið, og fyrir það erum við afar þakklát.
Handknattleiksdeild Þórs þakkar Daniel fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni," segir í tilkynningu félagsins.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗