HSÍ sendir frá sér yfirlýsingu
Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna framkomu áhorfanda í garð dómara í leik Vals og Aftureldingar í úrvalsdeild k…
Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna framkomu áhorfanda í garð dómara í leik Vals og Aftureldingar í úrvalsdeild karla 31. október síðastliðinn.
Í yfirlýsingunni leggur HSÍ áherslu á að allir sem koma að handboltanum, hvort sem um ræðir leikmenn, þjálfara, dómara, starfsmenn eða áhorfendur, sýni virðingu í orði og verki.
„HSÍ fordæmir alla hegðun og framkomu sem fer í bága við siðareglur sambandsins. Handboltinn á að vera vettvangur þar sem allir geta tekið þátt og notið íþróttarinnar í öruggu umhverfi, þar sem gagnkvæm virðing, jafnrétti og fagmennska eru höfð að leiðarljósi.
Niðrandi ummæli, fordómar og mismunun eiga hvergi heima og slík hegðun er aldrei í lagi, hvorki innan íþróttahreyfingarinnar né annars staðar í samfélaginu. Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að standa vörð um þau gildi sem íþróttin byggir á og bregðast við þegar farið er yfir mörkin.
HSÍ mun áfram leggja áherslu á að siðareglur sambandsins séu virtar og að handboltinn sé öllum öruggur og aðgengilegur vettvangur þar sem virðing og tillitssemi eru í fyrirrúmi,“ segir í yfirlýsingunni.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗