Sánchez sennilega fallinn
Útgönguspár eru komnar frá Spáni.
Erlent | AFP | 29.11.2026 | 19:36
Pedro Sánchez forsætisráðherra er sennilega á förum miðað við fyrstu útgönguspár. AFP/Javier Soriano
Kjörstöðum hefur verið lokað á Spáni núna þegar klukkan slær átta þar. Það er fyrir utan á Kanaríeyjum sem eru einum klukkutíma á eftir meginlandinu og á sama tíma og við Íslendingar.
Reiknað er með stórsigri íhaldssama Lýðflokksins (PP) og hægriöfgaflokksins Vox samkvæmt fyrstu útgönguspám. Saman gætu flokkarnir náð hreinum meirihluta á þingi. Lýðflokkurinn gæti náð 129 til 134 sætum og Vox 44 til 48.
Rætist þessar fyrstu útgönguspár þýðir það að Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, í Sósíalistaflokknum (PSOE) hrökklast úr forsætisráðherrastólnum.
Hann tók ákvörðun um að flýta þingkosningunum um átta mánuði eftir að mikil mótmæli brutust út. Þar var háu húsnæðisverði mótmælt sérstaklega.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
