Fjörutíu ára gamalt met fallið á Spáni
Kjörsókn hefur ekki verið meiri í 40 ár.
Erlent | AFP | 29.11.2026 | 18:06
Santiago Abascal, leiðtogi jaðarhægriflokksins, Vox kýs í þingkosningum á Spáni í dag. AFP/Thomas Coex
Fjörutíu ára gamalt metið féll á Spáni þegar kjörsókn mældist 68% klukkan fimm í dag á okkar tíma.
Kjörsókn hefur ekki mælst hærri um það leyti síðan árið 1968. Þá mældist kjörsókn 66,59%.
Þingkosningar fara nú fram á Spáni í skugga óánægju vegna húsnæðisvandans. Umfangsmikil mótmæli brutust út þegar 87 ára gamalli konu var gert að yfirgefa leighúsnæðið sitt þar sem hún hafði ekki tök á að borga nýhækkaða leigu.
Kosningarnar áttu að fara fram eftir átta mánuði en var flýtt vegna mótmælanna.
Óvíst er hvort Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, haldi velli en flokkur hans, Sósíalistaflokkurinn (PSOE) hefur mælst með minna fylgi en hann fékk í síðustu kosningum. Flokkurinn á í vök að verjast gegn íhaldsflokknum Lýðflokknum (PP). Sá flokkur gæti þó þurft á stuðningi öfgahægriflokksins Vox að halda til að tryggja sér meirihluta í þinginu og steypa Sánchez af stóli.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
