Vantar smá herslumun

Tryggvi Snær Hlinason.

„Við vorum vel stemmdir og tilbúnir í þennan leik. Við sýndum það sérstaklega í fyrstu tveimur leikhlutunum, sagði Tryggvi Snær Hlinason í viðtali á RÚV eftir leik Íslands og Tyrklands í dag.

„Satt að segja að þá veit ég það ekki akkúrat núna. Við fengum miklar opnanir í upphafi en við náðum ekki að finna jafn létt og þægileg skot í sókn. Tyrkirnrir settu svo niður allt of mikið af stigum, fengu bæði auðveldar körfur og settu niður skot í snertingu (e. contact).

Við spiluðum ágætan leik þar til í lokin, þegar við missum þá frá okkur. Því miður er þetta mjög gott lið og svona fór það í dag," sagði Tryggvi aðspurður um hvað hefði gengið ver í seinni hálfleik samanborið við þann fyrri.

Ísland á tvo leiki eftir í undankeppninni gegn Serbíu á heimavelli og Bosníu á útivelli í lok febrúar og byrjun mars á næsta ári.

„Við ætlum að gera það sama og við gerum alltaf sem er að við ætlumst til þess að reyna að vinna alla leikina. Við vitum að við getum alveg keppt við þessar þjóðir.

Það vantar smá herslumun sem við höfum ekki náð að sýna. Við þurfum bara að sýna það," sagði Tryggvi Snær á RÚV eftir leik.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「mbl.is - Íþróttafréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读