Meistarinn vann í Katar

Ítalinn Kimi Antonelli á Mercedes vann Formúlu 1-kappaksturinn í Katar í dag eftir harða baráttu við liðsfélaga sinn, George Russell.

George Russell, Kimi Antonelli og Oscar Piastri á verðlaunapallinum í dag. AFP/Karim Jaafar

Ítalinn Kimi Antonelli á Mercedes vann Formúlu 1-kappaksturinn í Katar í dag eftir harða baráttu við liðsfélaga sinn, George Russell.

Russell hóf keppni á ráspól en ók yfir brak á brautinni eftir árekstur Arvid Lindblad. Það hafði neikvæð áhrif á loftafl bílsins og dró úr hraða hans.

Antonelli, sem hefur þegar tryggt sér meistaratitilinn, veitti Russell harða keppni í upphafi en Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes, þurfti að grípa inn í og biðja ökumennina um að gæta sín.

Russell tafðist síðan í síðasta þjónustuhléinu þegar liðsmenn Mercedes reyndu að fjarlægja brak úr bílnum. Antonelli tók forystuna og vann að lokum með 31 sekúndu mun.

Antonelli bauðst í tvígang til að hleypa Russell fram úr sér undir lok keppninnar en Mercedes hafnaði því. Oscar Piastri hjá McLaren varð þriðji, Max Verstappen fjórði og Lando Norris fimmti.

Verstappen hafði betur gegn Norris í baráttunni um fjórða sætið þrátt fyrir að McLaren-bíllinn virtist hraðskreiðari. Norris missti þrjú sæti í ræsingunni og tókst ekki að komast fram úr Hollendingnum. Ferrari-ökumennirnir Lewis Hamilton og Charles Leclerc höfnuðu í sjöttu og sjöunda sæti.

Aðeins einn kappakstur er eftir á tímabilinu en baráttan um þriðja sætið í keppni bílasmiða milli Red Bull og McLaren er enn opin.

Liðin eru jöfn að stigum fyrir lokakappaksturinn í Abu Dhabi um næstu helgi og um tíu milljónir dala í verðlaunafé eru undir.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「mbl.is - Íþróttafréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读