Palace mistókst að senda United á botninn

Hull sigraði botnlið Crystal Palace, 3:2, á útivelli í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag.

Oli McBurnie skoraði fyrsta mark Hull af þremur.

Oli McBurnie skoraði fyrsta mark Hull af þremur. AFP/Lindsey Parnaby

Hull sigraði botnlið Crystal Palace, 3:2, á útivelli í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag.

Palace situr fast á botninum með sjö stig en liðið hefði með sigri farið upp fyrir Manchester United og Sunderland, sem eru einnig í fallsætum, en það tókst ekki. Hull er í níunda sæti með 17 stig.

Oli McBurnie kom Hull yfir með skallamarki á 38. mínútu og það var eina mark fyrri hálfleiks. Staðan var 1:0 í hálfleik en Sorba Thomas tvöfaldaði forystu Hull á 48. mínútu og Regan Slater skoraði þriðja og síðasta mark Hull. 

Jorgen Strand Larsen skoraði fyrsta mark Palce á 90. mínútu og Adam Wharton minnkaði muninn í 2:3 á fimmtu mínútu uppbótartímans. Það var aðeins of seint að byrja endurkomuna á 90. mínútu og lokatölur voru 3:2

Newcastle hafði betur gegn Brighton, 1:0, á útivelli. Harvey Barnes skoraði sigurmark Newcastle á áttundu mínútu leiksins úr vítaspyrnu. 

Í fyrstu sókn Newcastle braut Luka Vuskovic á Joseph Willock og Barnes fór á punktinn. Hann setti boltann fast niðri í vinstra hornið.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读