Jafntefli í nágrannaslagnum
Liverpool og Everton gerðu 1:1-jafntefli í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Hills Dickinson vellinum í dag.
Rio Ngumoha, Alexander Isak, Dominik Szoboszlai og Florian Wirtz að stilla upp varnarvegg í dag. AFP/Darren Staples
Liverpool og Everton gerðu 1:1-jafntefli í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Hills Dickinson vellinum í dag.
Liverpool er í fjórða sæti með 22 stig og Everton í áttunda sæti með 17 stig.
Liverpool komst yfir á fimmtu mínútu leiksins með glæsilegu marki. Florian Wirtz fékk boltann á vítateigslínunni og renndi honum á Dominik Szoboszlai sem tók utanfótarskot og skrúfaði boltann niðri í vinstra hornið.
Everton jafnaði 20 mínútum síðar með klaufalegu sjálfsmarki Jeremie Frimpong. Everton fékk aukaspyrnu á fínum stað fyrir fyrrigjöf, Drewsbury-Hall kom með boltann inn í teig þar sem Frimpong var í barátu, hann stökk upp, fékk boltann í sig og inn í mark Liverpool. Staðan var 1:1 í hálfleik.
Liðin skiptust á færum í seinni hálfleik en hvorugu liðinu tókst að setja boltann í netið svo liðin skildu jöfn.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗