Davíð skoraði í Danmörku
Davíð Helgi Aronsson skoraði sárabótamark fyrir Lyngby í 4:2-tapi liðsins á heimavelli gegn Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Davíð Helgi Aronsson skoraði sárabótamark fyrir Lyngby í 4:2-tapi liðsins á heimavelli gegn Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Lyngby er í næstneðsta sæti með 11 stig eftir 16 leiki en Viborg er í þriðja sæti með 30 stig.
Leikurinn byrjaði ansi fjörlega og heimamenn komust yfir í leiknum strax á annari mínútu en gestirnir jöfnuðu aðeins mínútu síðar.
Þrjú mörk gestanna í Viborg í seinni hálfleik breyttu stöðunni í 4:1 en Davíð Helgi lagaði stöðuna á 86. mínútu og þar við sat.
Ísak Snær Þorvaldsson lék allan leikinn líkt og Davíð Helgi í liði Lyngby og Daníel Freyr Kristjánsson kom inn á sem varamaður á 77. mínútu.
Markvörðurinn Jón Sölvi Símonarsson var ekki í leikmannahópi Lyngby og Valgeir Lunddal Friðriksson var ekki með Viborg vegna meiðsla.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗