19 ára og slær met: „Ansi mikill munur“

Feðgarnir Heimir Sigurpáll Árnason og Árni Gunnarsson, sem halda úti búskap á sauðfjárbænum Sveinungsvík sunnan Raufarhafnar, eru kátir þessa da…

Heimir Sigurpáll til vinstri, hrúturinn Alfons til hægri.

Heimir Sigurpáll til vinstri, hrúturinn Alfons til hægri. Samsett mynd

Feðgarnir Heimir Sigurpáll Árnason og Árni Gunnarsson, sem halda úti búskap á sauðfjárbænum Sveinungsvík sunnan Raufarhafnar, eru kátir þessa dagana en hrútur þeirra, Alfons, sló í liðinni viku met í hrútadómum í ræktunarfélaginu Þistli í Norður-Þingeyjarsýslu.

Heimir Siguráll, sem er aðeins 19 ára, þakkar skýrri ræktunarstefnu og góðri fóðrun árangurinn. „Við erum alltaf að reyna að gera vel,“ segir hann.

Viðtal sem birtist við Heimi Sigurpál í síðasta mánuði þar sem hann lýsti hugsjónum sínum þegar kemur að íslenskum landbúnaði vakti mikla athygli en segja má að metið í hrútadómum sanni að hann hafi eitthvað til síns máls.

Verið að dæma bestu feðurna

„Í raun og veru er verið að dæma bestu feðurna, það er að segja hrútana sem skila bestu tölunum í sláturhúsin. Það er frekar flókin reikniformúla á bak við það hvernig stigin eru reiknuð út og það er svolítið misjafnt eftir ræktunarfélögum,“ segir Heimir Páll, beðinn um að útskýra á mannamáli í hverju umrætt met felst.

„Í ár vorum við með þennan hrút sem heitir Alfons og hann fékk 50 stig, sem er það hæsta sem hefur verið gefið. Hrútarnir sem komu næstir á eftir honum voru með um 36 stig.“

Til að skýra árangurinn enn frekar líkir Heimir Sigurpáll hrútadómnum við þúsund metra hlaup. „Ef fyrra metið væri hálftími væri þetta eins og að hlaupa vegalengdina á tíu mínútum. Þetta er því ansi mikill munur.“

Árni Gunnarsson, faðir Heimis, tók við verðlaununum fyrir hönd þeirra feðga. Ljósmynd/Aðsend

Bræður í hæsta gæðaflokki

Alfons er sæðingahrútur undan hrútnum Alvis en hann er einn af fjórum Alvis-sonum sem settir voru á í Sveinungsvík haustið 2025. Ljóst er að þar hafi verið um góð gen að ræða.

„Tveir efstu hrútarnir í haust hvað kjötgæði varðar voru Alfons og Algeir, bróðir hans, og þeir verða mikið notaðir í vetur,“ segir Heimir. 

Þá segir Heimir að Alfons hafi verið einstaklega vel gerður sem lambhrútur, lágfættur og þroskaður yfir meðaltali. „Lömbin undan honum eru hins vegar mjög þroskamikil og einstaklega vel gerð,“ segir Heimir.

„Móðir Alfons, rétt eins og móðir Algeirs, rekur ættir sínar til Kebba frá Klifshaga, sem virðist vera að skila gerðafestu inn í ræktunina,“ segir hann jafnframt.

Forðast þá sem eru ekki sérlega góðir

Spurður hvað skýri helst þennan framúrskarandi árangur í hrútadómnum segir Heimir það helst vera skýra stefnu og góða fóðrun. 

„Ég held að það sem ráði þessu sé skýr stefna í sauðfjárrækt. Það þarf að vita hvað maður er að gera í ræktuninni, vanda pörun hrúta og kinda og velta fyrir sér ættfræðinni. Maður þarf að vita hvaða hrútar hafa verið að skila árangri og hverjir ekki og forðast að nota þá sem eru ekkert sérstaklega góðir,“ segir hann.

„Svo skiptir fóðrunin líka máli. Kindurnar þurfa að vera vel haldnar og fá gott fóður þannig að þær séu hraustar og heilbrigðar. Góð umhirða á vorin og veturna skiptir líka ofboðslega miklu máli.“ 

Heimir segir liggja fyrir að lömbin í Sveinungsvík þyngist mest í september á markvissri og góðri beit.

„Ég held að það sé sem betur fer að verða einhvers konar vitundarvakning í sauðfjárrækt varðandi góða beit og að hafa lömbin á fjölbreyttri beit,“ segir Heimir Sigurpáll.

Setur markmið hvert haust

En hvernig er tilfinningin að sjá alla vinnuna sem þið leggið í sauðfjárræktina skila sér í svo góðum árangri?

„Þetta er náttúrulega ofboðslega ánægjulegt og það kitlar mann alveg að sjá árangurinn verða að veruleika,“ segir Heimir.

„Maður setur sér markmið á hverju hausti og vori um að reyna að gera betur. Þetta ýtir bara undir það að reyna að ná enn meiri árangri og gera enn betur í sauðfjárrækt.“

Hrúturinn Alfons er vægast sagt glæsilegur.

Hrúturinn Alfons er vægast sagt glæsilegur. Ljósmynd/Aðsend

Heimir Sigurpáll þakkar skýrri stefnu og góðri fóðrun árangurinn.

Heimir Sigurpáll þakkar skýrri stefnu og góðri fóðrun árangurinn. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Helstu fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读