„Frumburðurinn minn lifði ýmist eða dó í hugum okkar“

Skipið var sokkið, öll áhöfnin komin í sjóinn og þótt hjálp væri á leiðinni úr öllum áttum virtist hún óralangt í burtu.

Sonur Lindu var einn þeirra sem bjargað var úr sjónum eftir að Jökull sökk á miðvikudag. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Móðir Markúsar Más Eldjárns Arnórssonar, eins þeirra fjórtán skipverja sem bjargað var úr sjávarháska þegar Jökull ÞH sökk á miðvikudag, segir útsjónarsemi, fórnfýsi og ofurmannlegan styrk viðbragðsaðila hafa orðið til þess að sonur hennar sneri aftur heim á lífi.

Linda Björk Markúsardóttir, móðir Markúsar, lýsir þeim skelfilegu klukkustundum sem fjölskyldan upplifði á meðan óvissa ríkti um afdrif hans í aðsendri grein á Vísi og veltir því fyrir sér hvernig hægt sé að þakka þeim sem björguðu lífi hans.

Þá segir hún mannsæmandi vinnuaðstæður hetjanna sem komu skipverjunum til bjargar og nægjanlegan fjölda þyrlna vera það minnsta sem hægt sé að tryggja.

Lifði ýmist eða dó í hugum ástvina

„Miðvikudagskvöldið 25. nóvember síðastliðið einkenndist af óvissu þar sem þyngd hverrar sekúndu marði beinin og frumburðurinn minn lifði ýmist eða dó í hugum okkar ástvina hans, farandi eftir því hvort bjart- eða svartsýnin var ofan á þá stundina,“ skrifar hún.

Skipið var sokkið, öll áhöfnin komin í sjóinn og þótt hjálp væri á leiðinni úr öllum áttum virtist hún óralangt í burtu.

„Á meðan við fjölskyldan grétum, fylltumst örvæntingu, þrömmuðum um gólf og nöguðum neglurnar niður í kviku voru viðbragðsaðilar að ráða ráðum sínum og þvílík og önnur eins ráð!“

Hélt syni hennar hérna megin við tilveruna

Hún segir viðbragðsaðila hafa verið reiðubúna til að ganga langt í því að bjarga skipverjunum, meðal annars með því að taka alla sautján um borð í eina þyrlu Gæslunnar. Beygja og brjóta reglur svo ekki þyrfti að skilja neinn eftir. 

En fram hefur komið að þyrlan er hönnuð til að geta borið 21 mann, en þegar allir sautján skipverjarnir voru komnir um borð ásamt sex manna áhöfn, voru þar 23. Þá var flogið þrefalda leyfilega vegalengd þar sem ekki var önnur þyrla til staðar.

„Útsjónarsemi, fórnfýsi og ofurmannlegur styrkur þessa fólks hélt syni mínum hérna megin við tilveruna, sem og hinum skipverjunum 13 sem sneru aftur lífs úr kolsvörtu og hyldjúpu gini hafsins þetta kvöld. Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“

Konfekt virðist hálf hjákátlegt

Hún segir fólk gjarnan velta því fyrir sér á þessum árstíma hvað eigi að gefa þeim sem eigi allt. Sjálf standi hún frammi fyrir allt annarri spurningu.

„Spurningin sem ég stend frammi fyrir er hvernig þakkar maður þeim sem aldrei er hægt að þakka nógsamlega? Ég hreinlega veit það ekki.“

Eitt sé þó á hreinu.

„Hetjusæmandi vinnuaðstæður og hæfilegur fjöldi þyrlna er gólfið þar, ekki þakið. Við aðstandendur eftirlifenda tökum svo glöð við uppástungum að öðrum þakkargjöfum og virðingarvottum. Konfekt virðist hálf hjákátlegt.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读